Viðræður um nýja stjórn á Norður-Írlandi sigla í strand Atli Ísleifsson skrifar 27. mars 2017 15:14 Arlene Foster, leiðtogi DUP og fyrrverandi fyrsti ráðherra Norður-Írlands. Vísir/AFP
Eftir þriggja vikna stjórnarmyndunarviðræður á Norður-Írlandi er ljóst að þær hafa siglt í strand. Þetta varð ljóst í gær. Breskur ráðherra málefna Norður-Írlands mun nú ákveða næstu skref. Ráðherrann James Brokenshire er nú með þrjá kosti í stöðunni: að setja nýjan frest fyrir norður-írska þingið að ná saman um stjórnarmeirihluta, að boða til nýrra kosninga eða þá að láta bresku stjórnina að taka yfir stjórn Norður-Írlands að fullu. Viðræður Lýðræðislega sambandsflokksins (DUP) og Sinn Féin hafa staðið í um þrjár vikur og hafa báðir flokkar tilkynnt að þær hafi engu skilað. Liðsmenn DUP eru flestir mótmælendur og vilja að Norður-Írland verði áfram hluti af breska konungdæminu, en liðsmenn Sinn Féin eru að langstærstum hluta kaþólskir og vilja að Norður-Írland segi skilið við Bretland. DUP hlaut 28,1 prósent atkvæða í nýlegum kosningum til norður-írska þingsins, en Sinn Féin 27,9 prósent. Martin McGuinness, leiðtogi Sinn Féin, sagði af sér í janúar og sagði ástæðuna vera hjartasjúkdóm og að hann ætti í vandræðum með að starfa með Arlene Foster, leiðtoga DUP og fyrsti ráðherra Norður-Írlands. McGuinness lést í síðustu viku og voru þúsundir manna sem fylgdu honum til grafar. Michelle O'Neill tók við sem leiðtogi Sinn Féin af McGuinness. Friðarsamkomulag fylkinganna frá árinu 1998 gerir ráð fyrir að stærstu flokkar mótmælenda og kaþólikka deili völdum í stjórn Norður-Írlands.Uppfært 15:47: Brokenshire hefur gefið flokkum á norður-írska þinginu nýjan frest til að ná saman um stjórnarmyndun. Sagði hann það mikil vonbrigði að það hafi enn ekki tekist og að fólk hafi engan áhuga á enn einum kosningum á Norður-Írlandi. Tvennar þingkosningar hafa farið fram á Norður-Írlandi á síðustu tólf mánuðum.
Tengdar fréttir Einn helsti stjórnmálaleiðtogi Norður-Írlands látinn Martin McGuinness, fyrrverandi leiðtogi Sinn Féin, stjórnmálarms Írska lýðveldishersins (IRA) á Norður-Írlandi og fyrrverandi fyrsti ráðherra í heimastjórn landsins, er látinn, 66 ára að aldri. 21. mars 2017 07:47 Mest lesið Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Innlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Innlent „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Innlent Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Innlent Fleiri fréttir Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Mannfallið að nálgast tvær milljónir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Sjá meira
Einn helsti stjórnmálaleiðtogi Norður-Írlands látinn Martin McGuinness, fyrrverandi leiðtogi Sinn Féin, stjórnmálarms Írska lýðveldishersins (IRA) á Norður-Írlandi og fyrrverandi fyrsti ráðherra í heimastjórn landsins, er látinn, 66 ára að aldri. 21. mars 2017 07:47