Shearer um mikilvægi Ibrahimovic: Stórkostlegt fyrir ungu strákana Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. febrúar 2017 11:00 Zlatan Ibrahimovic og Alan Shearer. Vísir/Samsett/Getty
Zlatan Ibrahimovic er orðinn kóngurinn á Old Trafford þrátt fyrir aðeins nokkra mánuði með Manchester United og sumir eru meira að segja farnir að líkja honum við kónginn Eric Cantona. Zlatan Ibrahimovic varð 35 ára í október og kom til Manchester United á frjálsri sölu. Hann hefur núna skorað 24 mörk í 37 leikjum og er langmarkahæsti leikmaður félagsins. Alan Shearer, 260 marka maður í ensku úrvalsdeildinni á sínum tíma, skrifar pistil um Zlatan á BBC en Shearer starfar núna sem knattspyrnuspekingur í Match of the Day þættinum á BBC. „Það eru ekki bara mörkin sem skipta máli heldur einnig áhrif hans á liðsfélaga. Menn hafa líkt þessu við hvernig áhrif Eric Canton hafði á liðsfélagana og ég skil af hverju,“ skrifar Alan Shearer. „Við þekkjum öll að Ibrahimovic hefur frábæra hæfileika sem fótboltamaður en persónutöfrarnir hans og hvernig hann ber sig hafa séð til þess að hann er orðinn andlit liðsins út á við,“ skrifar Shearer. „Það hlýtur að vera stórkostlegt fyrir ungu leikmenn United-liðsins, leikmenn eins og Marcus Rashford, Anthony Martial og Jesse Lingard, að vera í kringum einhvern sem hefur sama hungrið, sömu orkuna og sömu þrá eins og Ibrahimovic,“ skrifar Shearer. „Þeir geta lært hluti af hinum á vellinum en einnig með því að umgangast hann og æfa með honum á hverjum degi en það er dýrmæt reynsla fyrir þá að kynnast hugarfari hans á æfingum og í klefanum,“ skrifar Shearer. Alan Shearer spáir því jafnframt að Manchester United reyni að kaupa stórstjörnuframherja til að spila með Zlatan og um leið veita honum smá samkeppni. Það er hægt að lesa allan pistilinn hér.
Enski boltinn Mest lesið Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Scheffler tryggði sér 1.200 milljónir og toppaði Tiger Golf Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Íslenski boltinn „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Íslenski boltinn Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig Íslenski boltinn Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Enski boltinn „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ Íslenski boltinn FH - Keflavík 2-1 | Fjarlægjast fallsætin Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Sjá meira
Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Íslenski boltinn
Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Íslenski boltinn