Þriðja þrennan á árinu | Sjáðu mörkin hans Harry Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. febrúar 2017 09:00
Harry Kane fór heim með boltann eftir leik Tottenham og Stoke City í ensku úrvalsdeildinni í gær. Spurs vann leikinn 4-0 og skoraði Kane þrjú fyrstu mörk liðsins í leiknum og það tók hann aðeins 23 mínútur að skora þrennuna. Þetta var önnur þrenna Kanes á einni viku en hann skoraði öll þrjú mörk Spurs í 0-3 útisigri á Fulham í 16 liða úrslitum ensku bikarkeppninnar á sunnudeginum fyrir viku. Þetta er jafnframt þriðja þrenna hans á árinu 2017 en hann gerði einnig þrjú mörk í 4-0 sigri á West Brom 12. janúar síðastliðinn. Með sigrinum á Stoke komst Spurs upp í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Sigurinn var líka mikilvægur eftir vonbrigðin í Evrópudeildinni á fimmtudaginn. Kane skoraði þá sjálfsmark í 2-2 jafntefli við Gent á Wembley. Belgarnir unnu fyrri leikinn og fóru áfram, 3-2 samanlagt. Kane er nú orðinn markahæstur í ensku úrvalsdeildinni ásamt Romelu Lukaku, leikmanni Everton, og Arsenal-manninum Alexis Sánchez en þeir hafa allir skorað 17 mörk. Kane, sem varð markakóngur deildarinnar í fyrra, hefur reyndar þurft færri leiki til að ná þessum 17 mörkum en Lukaku og Kane. Uppgangur Kanes á síðustu rúmu tveimur árum er magnaður en þessi öflugi framherji er búinn að skora 63 mörk í 93 leikjum á síðustu þremur tímabilum í ensku úrvalsdeildinni.
Enski boltinn Mest lesið Ævintýralegar lokasekúndur tryggðu Ísland í átta liða úrslit Handbolti „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Enski boltinn Ronaldo trúlofaður Fótbolti „Dóri verður að hætta þessu væli“ Íslenski boltinn Duplantis bætti heimsmetið enn á ný Sport Úr enska boltanum í eiturlyfjasmygl og sjö ára fangelsi Enski boltinn Isak ætlar aldrei að spila fyrir Newcastle aftur Enski boltinn Ræddu lætin í Krikanum: „Það er helvítis hundur í Heimi“ Íslenski boltinn Toppurinn á ferlinum hingað til en getur gert betur Sport Bað um að grátandi krakka yrði vísað af vellinum Sport Fleiri fréttir Dýrasti leikmaður í sögu City lánaður til Everton Enska augnablikið: Forsjáli félaginn sem missti af öllu Úr enska boltanum í eiturlyfjasmygl og sjö ára fangelsi Isak ætlar aldrei að spila fyrir Newcastle aftur Coote dæmdur í átta vikna bann fyrir ummælin um Klopp Enska augnablikið: Sá allra svalasti „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Bale af golfvellinum og á skjáinn Hákon Rafn gæti fengið sénsinn Donnarumma skilinn eftir heima Enska augnablikið: Hlaupið út úr húsinu Hafa selt næstum alla vörnina en liðsstyrkur á leiðinni frá liði Hákonar Grealish lánaður burt en City vill ekki selja Savinho Crystal Palace tapaði áfrýjun og þarf að spila í Sambandsdeildinni Newcastle loks að fá leikmann Delap með tvö í öruggum sigri í síðasta leik fyrir mót Palace stefnir á að selja fyrirliðann fyrir gluggalok Enska augnablikið: Skellur þegar hann hrinti dómaranum Crystal Palace vann Samfélagsskjöldinn Enska augnablikið: Hjátrú og alsæla Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Nunez farinn frá Liverpool De Gea: Mun aldrei gleyma þessum leik Gyökeres byrjaður að skora fyrir Arsenal Enska augnablikið: Mætti sköllóttur á Old Trafford Gerrard: Owen var betri sem táningur en Yamal og Mbappé Albert lagði upp á Old Trafford í síðasta leik United fyrir tímabilið Draumabyrjun Wrexham breyttist í martröð í lokin Isak verður áfram í frystikistunni í fyrsta leik Newcastle Sjá meira