Alexis Sánchez er eini leikmaður Arsenal sem kæmist í byrjunarlið Tottenham Hotspur.
Þetta segir Paul Merson, fyrrverandi leikmaður Arsenal og enska landsliðsins og núverandi sparkspekingur á Sky Sports.
Sánchez hefur spilað vel fyrir Arsenal í vetur og skorað 15 mörk í ensku úrvalsdeildinni. En þrátt fyrir þau er Arsenal 12 stigum á eftir toppliði Chelsea þegar 24 umferðum er lokið.
„Ég veit ekki hvar þeir væru án hans,“ sagði Merson um Sílemanninn snjalla.
„Hann er aðalmaðurinn í liðinu. Ég var að spjalla við mann um daginn þar sem ég sagði að Sánchez væri eini leikmaðurinn úr Arsenal sem kæmist í byrjunarlið Tottenham. Ef þú ferð yfir liðið sé ég bara ekki hvaða annar leikmaður Arsenal kæmist þar inn. Það getur ekki verið eðlilegt,“ bætti Merson við.
Sánchez verður væntanlega á sínum stað í byrjunarliði Arsenal sem mætir Hull City í hádeginu á morgun. Með sigri fer Arsenal upp í 3. sæti deildarinnar, allavega um stundarsakir.
