Nú er komin skýring á faðmlagi Pep Guardiola og Arter í gær Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. febrúar 2017 16:00 Pep Guardiola og Harry Arter. Vísir/Getty
Manchester City vann 2-0 sigur á Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi en það vakti athygli eftir leik þegar fór einstaklega vel á með þeim Pep Guardiola, knattspyrnustjóra Manchester City og Harry Arter, leikmanni Bournemouth. Pep Guardiola faðmaði ekki aðeins Harry Arter í heillangan tíma heldur talaði einnig lengi við hann. Þetta var hjartnæm stund og nú er Harry Arter búinn að segja frá því hvað fór þeim á milli. Guardiola kom sérstaklega til Harry Arter til að óska honum og konu hans góðs gengis en þau eiga von á barni. Harry og Rachel urðu fyrir miklu áfalli í desember 2015 þegar dóttir þeirra fæddist andvana. Þau eiga nú aftur von á barni. Harry Arter var djúpt snortinn.„Hann óskaði mér og konunni góðs gengis sem var ótrúlega hugulsamt af honum,“ sagði Harry Arter við Daily Echo. „Hann er maður sem ég bera rosalega mikla virðingu fyrir. Ég horfði á Barcelona-liðin hans og sjáið bara Manchester City liðið hans í kvöld. Að mínu mati er hann besti knattspyrnustjórinn í heimi. Ég tel að engin komist nálægt honum og því sem hann hefur afrekað,“ sagði Arter. „Ég met það mikils að hann hafi komið sérstaklega til mín og ég tók kveðju hans með brosi á vörum,“ sagði Arter. From Pep to @HarryArter2, a touch of class..."He gave me and my partner his best wishes ahead of the birth of our child."#afcb pic.twitter.com/BEu0MaRbBK— AFC Bournemouth (@afcbournemouth) February 13, 2017
Enski boltinn Mest lesið „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Körfubolti Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Íslenski boltinn Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa Fótbolti Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Vignir Vatnar sneri upp á Evrópumeistara Sport Mark Alberts ekki nóg og Crystal Palace upplifði sögulegt kvöld Fótbolti Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti Fleiri fréttir Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Sjá meira