Gylfi og félagar hlaupa meira síðan að Clement tók við Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. febrúar 2017 21:00 Gylfi Þór Sigurðsson hreyfir sig mikið í leikjum Swansea. Vísir/Getty
Paul Clement hefur keyrt Swansea liðið í gang síðan að hann tók við liðinu af Bandaríkjamanninum Bob Bradley í byrjun nýs árs. Swansea hefur unnið fjóra af fyrstu sex deildarleikjum ársins 2017 og er nú komið fjórum stigum frá fallsæti eftir að hafa verið í neðsta sætinu þegar Clement tók við. Margir knattspyrnusérfræðingar hafa komið með sínar skýringar á betra gengi velska liðsins og Gylfi Þór Sigurðsson er að sjálfsögðu áberandi í allri þeirri umræðu. Gylfi hefur komið að fimm mörkum í fimm deildarleikjum undir stjórn Paul Clement og er bæði sá sem hefur skorað flest mörk (3) og gefið flestar stoðsendingar (2) hjá Swansea síðan að Clement tók við. Hlaupatölfræði Swansea-liðsins er líka mjög athyglisverð en þar sést svart á hvítu að leikmenn Swansea eru að hlaupa meira í sínum leikjum eftir að Paul Clement settist í stjórastólinn. Sky Sports tók þetta saman. Fimm deildarleikir Swansea undir stjórn Paul Clement eru allir inn á topp sjö yfir þá leiki þar sem liðsmenn Swansea hafa hlaupið samanlagt mest inn á vellinum. Leikmenn Swansea hafa aldrei hlaupið meira en í sigrinum á Liverpool á Anfield en þar skoraði einmitt Gylfi Þór Sigurðsson sigurmarkið.Liðsmenn Swansea og sjö bestu hlaupaleikir tímabilsins. (Upplýsingar frá Sky Sports). 1) 3-2 sigur á Liverpool - 120,6 km (Clement) 2) 0-4 tap fyrir Arsenal - 117,6 km (Clement) 3) 1-2 tap fyrir Man. City - 117,3 km (Clement) 4) 1-3 tap fyrir Man. Utd - 116,2 km (Bradley) 5) 2-0 sigur á Leicester - 114,6 km (Clement) 6) 1-2 tap fyrir Liverpool - 114,4 km (Guidolin) 7) 2-1 sigur á Southampton - 114,2 km (Clement)
Enski boltinn Mest lesið „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Körfubolti Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Íslenski boltinn Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa Fótbolti Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Mark Alberts ekki nóg og Crystal Palace upplifði sögulegt kvöld Fótbolti Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda Íslenski boltinn Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti Fleiri fréttir Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Sjá meira