Bandarískur landsliðsmaður fagnar gríðarlega umdeildri tilskipun Trumps Tómas Þór Þórðarson skrifar 3. febrúar 2017 12:00 Geoff Cameron er í hópi fárra íþróttamanna sem hafa opinberlega stutt Trump. vísir/getty
Geoff Cameron, leikmaður Stoke og landsliðsmaður Bandaríkjanna í fótbolta, er sammála tilskipun Donalds Trumps, forseta Bandaríkjanna, að takmarka straum flótta- og ferðamanna frá sjö múslímaríkjum til landsins. Tilskipunin meinar öllum ríkisborgurum Íraks, Írans, Líbíu, Sómalíu, Súdans, Sýrlands og Jemens inngöngu í Bandaríkin og gildir slíkt einnig um fólk frá þessum ríkjum sem eru handhafar græna kortsins. Fjölmargir bandarískir íþróttamenn hafa látið óánægju sína í garð Trumps í ljós, þar á meðal samherjar Camerons í landsliðinu á borð við Michael Bradley, Alejandro Bedoya, Darlington Nagbe og Sacha Kljestan. „Ég tel mikilvægt að styðja forsetann okkar hvort sem þú kaust hann eða ekki,“ segir Cameron í viðtali við Sports Illustrated. „Ég fagna því að hann setji öryggi allra Bandaríkjamanna í forgang. Óvinir okkar hafa sagt - og sýnt í verki í Evrópu - að þeir nýta sér lin innflytjendalög til að framkvæmda hryðjuverk. „Það er fullkomlega skiljanlegt að setja innflytjendur aðeins á ís á meðan verið er að skoða málin betur. Bandaríkin eru ein gjafmildasta og hugljúfasta þjóð heims. Við þurfum samt að hugsa um okkar eigið öryggi. Ef okkur líður ekki eins og við erum örugg, hvernig eigum við þá að verja aðra?“ segir Geoff Cameron.
Enski boltinn Mest lesið Lehmann færir sig um set á Ítalíu Fótbolti Enrique staðfestir að Donnarumma sé á förum frá PSG Fótbolti Wrexham áfram eftir vítaspyrnukeppni Fótbolti „Þetta var eflaust frábær leikur fyrir áhorfendur“ Fótbolti „Þetta var bara út um allt“ Fótbolti Ævintýralegar lokasekúndur tryggðu Ísland í átta liða úrslit Handbolti Nýtt hlaðvarp Sýnar um draumaliðsleik enska boltans Fótbolti FCK rassskellti frændur sína frá Malmö Fótbolti „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Enski boltinn Duplantis bætti heimsmetið enn á ný Sport Fleiri fréttir Dýrasti leikmaður í sögu City lánaður til Everton Enska augnablikið: Forsjáli félaginn sem missti af öllu Úr enska boltanum í eiturlyfjasmygl og sjö ára fangelsi Isak ætlar aldrei að spila fyrir Newcastle aftur Coote dæmdur í átta vikna bann fyrir ummælin um Klopp Enska augnablikið: Sá allra svalasti „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Bale af golfvellinum og á skjáinn Hákon Rafn gæti fengið sénsinn Donnarumma skilinn eftir heima Enska augnablikið: Hlaupið út úr húsinu Hafa selt næstum alla vörnina en liðsstyrkur á leiðinni frá liði Hákonar Grealish lánaður burt en City vill ekki selja Savinho Crystal Palace tapaði áfrýjun og þarf að spila í Sambandsdeildinni Newcastle loks að fá leikmann Delap með tvö í öruggum sigri í síðasta leik fyrir mót Palace stefnir á að selja fyrirliðann fyrir gluggalok Enska augnablikið: Skellur þegar hann hrinti dómaranum Crystal Palace vann Samfélagsskjöldinn Enska augnablikið: Hjátrú og alsæla Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Nunez farinn frá Liverpool De Gea: Mun aldrei gleyma þessum leik Gyökeres byrjaður að skora fyrir Arsenal Enska augnablikið: Mætti sköllóttur á Old Trafford Gerrard: Owen var betri sem táningur en Yamal og Mbappé Albert lagði upp á Old Trafford í síðasta leik United fyrir tímabilið Draumabyrjun Wrexham breyttist í martröð í lokin Isak verður áfram í frystikistunni í fyrsta leik Newcastle Sjá meira