Enn eitt markið frá Gylfa dugði ekki til gegn City | Sjáðu mörkin Stefán Árni Pálsson skrifar 5. febrúar 2017 15:15
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði frábært mark fyrir Swansea í 2-1 tapi gegn Manchester City og það á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í dag. Gabriel Jesus kom City yfir á 11. mínútu leiksins og héldu margir að heimamenn væru að fara rúlla yfir Swansea. Staðan í hálfleik var 1-0 en Gylfi Þór var frábær allan leikinn. Hann átti magnaða aukaspyrnu í síðari hálfleiknum sem stefndi beint í vinkilinn. Wilfredo Caballero náði rétt svo að verja boltann í stöngina. En á 81. mínútu fékk Gylfi boltann rétt fyrir utan teig. Hann lagði hann vel fyrir sig á vinstri og setti boltann laglega framhjá Caballero, 1-1. Þetta er þriðji leikurinn í röð sem Gylfi Þór skorar fyrir Swansea og hefur hann gert átta mörk í deildinni á tímabilinu. Það leit allt út fyrir að Swansea myndi ná í jafntefli en Gabriel Jesus var ekki á sama máli í uppbótartíma þegar hann kom boltanum yfir marklínuna eftir mistök hjá Fabianski í marki Swansea. City er komið upp í þriðja sæti deildarinnar með 49 stig en Swansea er í því 17. með 21 stig.
Enski boltinn Mest lesið „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Körfubolti Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Íslenski boltinn Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa Fótbolti Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Vignir Vatnar sneri upp á Evrópumeistara Sport Mark Alberts ekki nóg og Crystal Palace upplifði sögulegt kvöld Fótbolti Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti Fleiri fréttir Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Sjá meira