Hazard: Ef það er ekki verið að sparka mig niður er ég ekki að standa mig Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. febrúar 2017 18:00 Eden Hazard fær að finna fyrir því. vísir/getty
Eden Hazard, leikmaður Chelsea í ensku úrvalsdeildinni, er hrifinn af því þegar mótherjar hans eru að sparka hann niður trekk í trekk því þá líður honum eins og hann sé að spila leik. Hazard er sá leikmaður sem er brotið oftast á í ensku úrvalsdeildinni. Búið er að brjóta 67 sinnum á Hazard í vetur en næstur á listanum er Wilfried Zaha sem brotið hefur verið 66 sinnum á. Belginn í Chelsea-liðinu fékk að finna fyrir því í 3-1 sigrinum á Arsenal í hádeginu síðasta laugardag þar sem Francis Coquelin og Skodra Mustafi gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til að stöðva Hazard. Spörkin voru nokkur ansi hörð og sást Hazard haltra eftir leikinn. Hann gekk þó brosandi af velli og er ekkert sár því svona vill hann hafa hlutina. „Mér líður virkilega eins og ég sé inn í leiknum þegar það verið að sparka á fullu í mig. Ef það er ekki verið að sparka mig niður er ég ekki að standa mig, bara alls ekki,“ sagði Hazard við blaðamenn eftir sigurinn um helgina. „Ég er ekki að segja að ég hafi gaman að því að láta sparka mig niður en það er gott fyrir mig að finna virkilega fyrir því að ég sé að spila leik. Þetta hvetur mig áfram,“ sagði Eden Hazard. Chelsea er sem fyrr á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með 59 stig og hefur sex stiga forskot á Tottenham.
Enski boltinn Mest lesið Þrjátíu leikja bann: Hljóp reiður inn á og í áttina að Elíasi Fótbolti Sagði sína hlið á skógarferðinni sem hann fór í fyrir framan allan heiminn Sport Geta komið í veg fyrir að Donald Trump mæti á Ólympíuleikana Sport Notuðu Sturlu í leyfisleysi til að auglýsa pararáðgjöf Sport Þrír látnir í skotárás á íshokkíleik: „Hugsanlega vegna fjölskylduerja“ Sport Utan vallar: Eins og að missa ljósleiðarann og þurfa að nota aftur gamla módemið Íslenski boltinn Komu upp um meira svindl hjá Kanada í krullunni Sport „Ég skammast mín“ Sport Fast skotið í Extraleikunum: Nablinn treysti á tæknina og kálfana Sport Jutta Leerdam og Jordan Stolz breyttu orðrómi í sannleika Sport Fleiri fréttir Salah og trúfélagar fá drykkjarhlé í miðjum leikjum Mikel Arteta óttast að tímabil Arsenal stefni í kunnuglega átt Lærisveinar Lampard höfðu betur í toppslagnum Chelsea og Manchester United hafi spurst fyrir um Klopp Hákon hélt hreinu er Brentford sló út spútnik liðið Dregið í enska bikarnum: Chelsea heimsækir Hollywood lið Wrexham Heldur ævintýri Rooney og lærisveina hans í Macclesfield áfram í kvöld? Kemur til varnar liðsfélaga sínum hjá Liverpool Tók Arsenal bara korter að tæta Wigan í sig Úrvalsdeildarliðin áfram í 16-liða úrslit Úlfarnir mörðu D-deildarliðið í leðjuslag Sneri aftur á völlinn eftir hjartastopp Perri varði víti og Leeds áfram Hristu hausinn yfir ævintýralegum klúðrum „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Flugu af öryggi áfram í fimmtu umferð Tonali tryggði Newcastle áfram eftir skelfileg afglöp Bizot C-deildarlið sló Burnley út með draumamarki Stálheppnir gegn C-deildarliðinu Þægilegt hjá City og Guéhi getur varið titilinn Finnst fátt skemmtilegra en skítkastið Teddy trúir ekki að Tottenham taki Tudor Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Chelsea ekki í neinum vandræðum í enska bikarnum Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Fyrrum þjálfari Úlfanna tekur við hjá Forest Er Thomas Frank sá versti? Tudor tekur við Tottenham „Hann er skíthræddur“ Landsliðsþjálfari Norður-Íra tekur við liði Andra Lucasar Sjá meira