Stuttmynd: Svona fór metið í enska boltanum úr 65 þúsund pundum í 89 milljónir Tómas Þór Þórðarson skrifar 31. janúar 2017 09:45 John Charles eða Herramaðurinn eins og hann var alltaf kallaður og Paul Pogba. vísir/getty
Í dag er lokadagur félagaskipta í Evrópu en glugganum verður lokað á miðnætti. Þangað til geta félögin keypt og selt leikmenn að vild. Í tilefni dagsins bjó BBC til stutt myndband þar sem farið er yfir þróun á metinu yfir kaupverð á Englandi frá 1957 til 2017. Bæði eru teknir menn sem voru keyptir til enskra félaga og seldir frá þeim. Metféð hefur aukist töluvert en árið 1957 var „Herramaðurinn“ John Charles keyptur frá Leeds til Juventus fyrir 65 þúsund pund. Hann var þá að tvöfalda fyrra met. Tuttugu árum síðan yfirgaf Kevin Keegan Liverpool og fór til Hamburg SV fyrir 500 þúsund pund. „Ég er hræddur um að þangað til ensku félögin fara að borga leikmönnum almennilega þá gerist þetta,“ sagði Keegan þegar hann skrifaði undir við þýska félagið. Trevor Francis varð fyrsti leikmaðurinn sem kostaði eina milljón punda þegar Nottingham Forest keypti hann frá Birmingham fyrir 1,18 milljón en Chris Waddle fór svo árið 1989 frá Tottenham til Marseille fyrir 4,25 milljónir punda. Paul Gascoigne kostaði Lazio 5,5 milljónir punda þegar það keypti hann frá Tottenham en Alan Shearer tvöfaldi svo metið árið 1996 þegar Newcastle keypti hann frá Blackburn fyrir 15 milljónir punda. Manchester City keypti Robinho frá Real Madrid fyrir 32,5 milljónir punda en heimsmet var slegið þegar Real Madrid keypti Gareth Bale frá Tottenham árið 2013 fyrir 85 milljónir punda. Það met stóð í fjögur ár eða þar til Paul Pogba kom aftur til Manchester United síðasta sumar fyrir 89,7 milljónir punda frá Juventus. Hver er næstur? Hægt er að sjá myndbandið með því að smella hér.
Enski boltinn Mest lesið Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Fótbolti Bunting dró orð sín til baka með tárin í augunum: „Ég er ekki meistari fólksins“ Sport Hættur aðeins þrítugur Golf Pílukastarinn biðst afsökunar á að hafa fallið á lyfjaprófinu og öllum lygunum Sport Ótrúleg tíðindi á HM í pílukasti: „Mikið sjokk“ Sport Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Enski boltinn Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Fleiri fréttir Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Sjá meira