Swansea upp að hlið Leicester og Burnley vann | Úrslit kvöldsins í enska | Sjáðu mörkin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. janúar 2017 22:00 Gylfi Þór Sigurðsson var hetja Swansea í kvöld. vísir/getty
Sigurmark Gylfa Þór Sigurðssonar sá til þess að Swansea sat ekki í fallsæti eftir leiki kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni því Crystal Palace vann 2-0 útisigur á Bournemouth á sama tíma. Þetta var gott kvöld fyrir Chelsea þrátt fyrir 1-1 jafntefli á móti Liverpool á Anfield því liðin í næstum sætum töpuðu öll stigum og Chelsea náði að auka forskot sitt í níu stig. Tottenham náði bara markalausu jafntefli á útivelli á móti Sunderland og Arsenal tapaði 2-1 á heimavelli á móti Watford. Watford vann sinn fyrsta útisigur í langan tíma þökk sé mörkum frá Younes Kaboul og Troy Deeneyá fyrstu þrettán mínútum leiksins. Arsenal klúðraði því góðu færi til að minnka forskot Chelsea á toppnum. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði sigurmark Swansea í öðrum leiknum í röð og lagði einnig upp fyrra markið í 2-1 heimasigri á Southampton. Swansea er þar með komið með 21 stig og upp að hlið Middlesbrough og Leicester City. Burnley vann 1-0 heimasigur á Englandsmeisturum Leicester City en Sam Vokes skoraði sigurmarkið þremur mínútum fyrir leikslok. Burnley hefur náð 25 af 26 stigum sínum á heimavelli í vetur en Leicester á enn eftir að vinna á útivelli. Scott Dann og Christian Benteke tryggðu Crystal Palace 2-0 útisigur á Bournemouth en mark Benteke kom ekki fyrr en í blálokin. Diego Costa gat tryggt Chelsea sigur á Liverpool á Anfield en varði vítaspyrnu frá honum þrettán mínútum fyrir leikslok. David Luiz kom Chelsea í 1-0 með marki úr aukaspyrnu en Georginio Wijnaldum skoraði jöfnunarmarkið í seinni hálfleiknum.Úrslit og markaskorarar úr ensku úrvalsdeildinni í kvöld:Bournemouth - Crystal Palace 0-2 0-1 Scott Dann (47.), 0-2 Christian Benteke (90.)Sunderland - Tottenham 0-0Arsenal - Watford 1-2 0-1 Younes Kaboul (10.), 0-2 Troy Deeney (13.), 1-2 Alex Iwobi (58.)Swansea - Southampton 2-1 1-0 Alfie Mawson (38.), 1-1 Shane Long (58.), 2-1 Gylfi Þór Sigurðsson (70.).Middlesbrough - West Bromwich 1-1 0-1 James Morrison (6.), 1-1 Álvaro Negredo, víti (17.)Burnley - Leicester 1-0 1-0 Sam Vokes (87.)Liverpool - Chelsea 1-1 0-1 David Luiz (25.), 1-1 Georginio Wijnaldum (57.)
Enski boltinn Mest lesið „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Körfubolti Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti Tyrkneska hlaupatilraunin mistókst Sport Vignir Vatnar sneri upp á Evrópumeistara Sport Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Íslenski boltinn Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa Fótbolti Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Þorsteinn og Glódís sátu fyrir svörum fyrir leik við England Fótbolti Fleiri fréttir Lærisveinar Lampard geta tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni Rose sagður taka við af Iraola Villa gæti sent Chelsea í Meistaradeild Evrópu Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Sjá meira