Mourinho um Luke Shaw: Verður að leggja meira á sig og læra af Mkhitaryan Tómas Þór Þórðarson skrifar 22. febrúar 2017 10:30 Luke Shaw er úti í kuldanum. vísir/getty
Luke Shaw, vinstri bakvörður Manchester United, þarf að leggja meira á sig og mögulega læra af Armenanum Henrikh Mkhitaryan ætli hann að vinna sér aftur inn byrjunarliðssæti í liði José Mourinho að sögn portúgalska knattspyrnustjórans. Shaw hefur ekki átt upp á pallborðið hjá Mourinho og er ekki einu sinni í leikmannahópi Manchester United sem mætir Saint-Étienne í kvöld í seinni leik liðanna í 32 liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Hann hefur aðeins komið við sögu í fjórtán leikjum á tímabilinu en Mourinho var spurður út í stöðu hans á blaðamannafundi í Frakklandi í gær. Shaw fær ekkert án þess að vinna fyrir því hjá Portúgalanum. „Luke varð eftir í Manchester því ég er með Daley Blind, Marcos Rojo og Matteo Darmian sem eru allir að spila eins og ég vil að bakverðir spili. Luke þarf að bíða eftir sínu tækifæri og leggja meira á sig því það fæst ekkert frítt hjá mér,“ segir Mourinho. „Þegar leikmenn fá eitthvað hjá mér er það rándýrt en ekki ókeypis. Leikmennirnir þurfa að leggja mikið á sig á hverjum degi þannig Luke verður bara að bíða. Eins og staðan er núna þá eru aðrir menn á undan honum í röðinni.“ Armenski miðjumaðurinn Henrikh Mkhitaryan var í svipaðri stöðu og Luke Shaw í byrjun leiktíðar en hann er búinn að vinna sér inn sæti í United-liðinu og hefur verið að heilla með frammistöðu sinni. „Luke hefur margt gott en svo er annað að sýna það sem menn hafa inni á vellinum. Hann þarf bara að halda áfram að leggja meira á sig eins og Mkhitaryan gerði í langan tíma,“ segir José Mourinho.
Enski boltinn Mest lesið Vonn á batavegi eftir þriðju aðgerðina Sport Fyrrverandi kærasta Sturlu tjáir sig: „Sárt að þurfa að standa í þessu“ Sport Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Enski boltinn Orri fagnaði sætum bikarsigri í Baskalandi Fótbolti Eins leiks bann og sekt fyrir hnefahöggið Körfubolti „Ég skil ekki hvernig fólk getur skrifað svona“ Sport Goðsögnin les Sturlu pistilinn eftir opinberun um framhjáhald Sport Reynir markahæstur hjá Melsungen og Gísli gerði mest fyrir Magdeburg Handbolti Real Madrid lúffar fyrir UEFA í deilum um Ofurdeildina Fótbolti Guðrún gerði sér góða ferð til Portúgal Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Burnley sótti lygilegan sigur og Villa vann þökk sé sjálfsmarki City kláraði Fulham fagmannlega í fyrri hálfleik Frank rekinn frá Tottenham Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Finnst ólukkan elta Liverpool Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt „Tottenham er í fallbaráttu“ „Eins og hann sé að grátbiðja um að verða seldur“ Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Sjáðu bombu Szoboszlai og allt dramað í lokin „Ég vissi að Carrick gæti orðið frábær stjóri“ Nýi leikmaður Liverpool meiddist alvarlega „Enn og aftur dæmir dómarinn ekki okkur í vil“ „Við urðum að vinna, annars væri titilbaráttan búin“ Manchester City kom til baka eftir stórskostlegt mark Szoboszlai Sarr tryggði sigur gegn Mávunum Sjáðu fjórða sigur United, þrennu Palmer og tvennu Gyökeres Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Brentford upp að hlið Liverpool eftir endurkomusigur á Newcastle Mikel Arteta segir að níu stiga forysta Arsenal þýði „ekkert“ Sjá meira