Gylfi lagði upp mark í endurkomusigri Swansea | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. mars 2017 16:45
Fernando Llorente tryggði Swansea City þrjú afar mikilvæg stig þegar liðið fékk Burnley í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni í dag. Lokatölur 3-2, Swansea í vil en þetta var fjórði sigur liðsins í síðustu sex leikjum. Gylfi Þór Sigurðsson lagði upp annað mark Swansea í leiknum. Þetta var hans tíunda stoðsending í vetur en enginn leikmaður í ensku úrvalsdeildinni hefur gefið fleiri. Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með Burnley vegna meiðsla. Llorente kom Swansea yfir á 12. mínútu þegar hann skallaði fyrirgjöf Leroys Fer í netið. Átta mínútum síðar færði Athony Taylor, dómari leiksins, Burnley vítaspyrnu á silfurfati. André Gray fór á punktinn og skoraði. Gray var svo aftur á ferðinni á 61. mínútu þegar hann skoraði eftir sendingu frá Sam Vokes. Forystan entist aðeins í átta mínútur því á 69. mínútu átti Gylfi glæsilega hælsendingu á Martin Olsson sem skoraði. Þetta er annað markið sem Gylfi leggur upp fyrir Olsson á þessu ári. Þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma skallaði Llorente boltann framhjá Paul Robinson í marki Burnley og tryggði Swansea sigurinn. Spánverjinn er nú kominn með 11 mörk í ensku úrvalsdeildinni í vetur.
Enski boltinn Mest lesið Crystal Palace vann Samfélagsskjöldinn Enski boltinn Sveindís Jane til bjargar á síðustu stundu Fótbolti Hafþór Júlíus fagnaði tólfta titlinum með því að rífa bolinn af sér Sport Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enski boltinn Arnar með met í 100 km: „Sýnist þetta vera níundi hraðasti tíminn í heiminum“ Sport Fór holu í höggi í beinni í sjónvarpinu Golf Uppgjör: Vestri-Fram 3-2 | Vestri með sigurmark í uppbótatíma Íslenski boltinn Tveir látnir eftir sama hnefaleikakvöld í Tókýó Sport Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Enski boltinn Leik lokið: KA - ÍBV 1-0 | Dagur Ingi tryggði KA mikilvæg stig Fótbolti Fleiri fréttir Crystal Palace vann Samfélagsskjöldinn Enska augnablikið: Hjátrú og alsæla Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Nunez farinn frá Liverpool De Gea: Mun aldrei gleyma þessum leik Gyökeres byrjaður að skora fyrir Arsenal Enska augnablikið: Mætti sköllóttur á Old Trafford Gerrard: Owen var betri sem táningur en Yamal og Mbappé Albert lagði upp á Old Trafford í síðasta leik United fyrir tímabilið Draumabyrjun Wrexham breyttist í martröð í lokin Isak verður áfram í frystikistunni í fyrsta leik Newcastle Meiðsli Rodri verri en menn héldu Manchester United staðfestir kaupin á Sesko Enska augnablikið: Grætti barnið en var slétt sama Sonur Rooney á hraðri uppleið hjá Man. United Enska augnablikið: Geðsturlun Georgíumannsins Enska augnablikið: 13 ára Hjörvar tók andköf Gjörbreytt framlína Man United með tilkomu Šeško Arsenal tapar fyrstu tveimur leikjum sínum með Gyökeres Maddison frá í að minnsta kosti hálft ár Dagný kveður West Ham með tárin í augunum Aðeins sjö lið í heiminum eytt meira en nýliðar Sunderland Verðmætustu uppöldu leikmennirnir spila í Arsenal Lyfta fólki upp til að skrifa á Jota minningarvegginn Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Lyon krækir í leikmann Liverpool Sjá meira