Krísufundur Henderson hafði góð áhrif á Liverpool-liðið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. febrúar 2017 09:30 Jordan Henderson og Jürgen Klopp eftir sigurinn á Tottenham. Vísir/Getty
Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, segir að slök byrjun liðsins á árinu sé leikmönnum liðsins að kenna Henderson segir að hann og félagar hans hafi skuldað knattspyrnustjóranum Jürgen Klopp og stuðningsmönnunum félagsins leik eins og þann á móti Tottenham um helgina sem Liverpool vann sannfærandi 2-0. Fram að honum hafði Liverpool leikið tíu leiki á árinu 2017, ekki unnið deildarleik, fallið út úr tveimur bikarkeppnum og misst sæti sitt meðal fjögurra efstu í fyrsta sinn síðan í september. Jordan Henderson boðaði alla leikmenn á fund á fimmtudaginn var þar sem menn hreinsuðu loftið og fóru yfir stöðuna. Það hafði greinilega góð áhrif því liðið svaraði með 2-0 sigri á einu besta liði ensku úrvalsdeildarinnar. „Við sem leikmenn verðum að taka ábyrgðina en okkur líður eins og við höfum brugðist okkur sjálfum, stjóranum og stuðningsmönnunum,“ sagði Jordan Henderson í viðtali við Sky Sports. „Frammistaðan á móti Spurs bætir ekki upp fyrir allt saman en þetta er byrjunin og skref í rétta átt. Við verðum að byggja ofan á þessa frammistöðu og halda áfram,“ sagði Henderson. „Við verðum að standa saman. Þetta var erfiður tími og við náðum ekki að vinna leik í langan tíma. Frammistaða okkar var ekki góð en menn verða að halda hópinn og halda trúnni. Mér fannst við gera það,“ sagði Henderson. „Mér fannst allir sína góðan karakter á móti Tottenham og nú verðum við að halda okkur stöðugum. Við höfum mikla hæfileika í liðinu, frábært hugarfar og góðan karakter. Það dugar samt lítið að segja þetta því það er undir okkur komið að sýna það og sanna það sem eftir lifir tímabilsins,“ sagði Henderson. Það er rólegt hjá Liverpool-liðinu á næstunni en liðið spilar ekki fyrr en 27. febrúar á móti Leicester City. Liðið mun nýta tímann með því að fara í æfingaferð til La Manga á Spáni.
Enski boltinn Mest lesið Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti Sonur Rooney á hraðri uppleið hjá Man. United Enski boltinn Njarðvíkingar á toppi Lengjudeildarinnar Fótbolti Heimsmeistarar Chelsea lögðu Leverkusen í æfingaleik Fótbolti Celtics festa þjálfarann í sessi Körfubolti Þýskaland lagði Slóvena í undirbúningi fyrir Eurobasket Körfubolti „Þarf ekkert að ræða við dómarann enda norskan farin að ryðga“ Sport Fyrsti kvendómarinn í bandaríska hafnaboltanum Sport Axel leiðir að öðrum degi loknum Golf Á Tryggvi Guðmundsson kannski enn markametið? Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Rooney á hraðri uppleið hjá Man. United Enska augnablikið: Geðsturlun Georgíumannsins Enska augnablikið: 13 ára Hjörvar tók andköf Gjörbreytt framlína Man United með tilkomu Šeško Arsenal tapar fyrstu tveimur leikjum sínum með Gyökeres Maddison frá í að minnsta kosti hálft ár Dagný kveður West Ham með tárin í augunum Aðeins sjö lið í heiminum eytt meira en nýliðar Sunderland Verðmætustu uppöldu leikmennirnir spila í Arsenal Lyfta fólki upp til að skrifa á Jota minningarvegginn Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Lyon krækir í leikmann Liverpool Partey laus á skilorði Son verður sá dýrasti í sögunni Man. United bauð 74 milljónir punda í Sesko Shearer með skilaboð til Newcastle: Losið ykkur við Isak Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Sjá meira
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti