Enginn meistarabragur á Tottenham í stóru leikjunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. febrúar 2017 15:00 Frammistaða Tottenham á móti Liverpool var ekki til útflutnings. Vísir/Getty
Tottenham hefur gert frábæra hluti undir stjórn Mauricio Pochettino og verið í toppbaráttunni bæði á þessu tímabili og í fyrra. Tapið á móti Liverpool um síðustu helgi, þegar Tottenham gat minnkað forskot Chelsea í sjö stig, var aftur á móti enn eitt dæmið um hvað hefur helst klikkað hjá lærisvinum Mauricio Pochettino undanfarin tímabil. Tottenham gengur nefnilega afar illa í stóru leikjunum það er í leikjum á móti efstu sex félögunum í ensku úrvalsdeildinni og í leikjum í Meistaradeildinni. Jamie Carragher og félagar í Monday Night Football á Sky Sports fóru yfir dapurt gengi Spurs á stóra sviðinu. Þar kom fram að Tottenham hafi aðeins unnið 24 prósent af stóru leikjunum sínum en aftur á móti 60 prósent annarra leikja. Tottenham hefur spilað 37 leiki á móti efstu sex félögunum í ensku úrvalsdeildinni og liðum í Meistaradeildinni en aðeins unnið 9 þeirra. Töpin eru alls sextán talsins. Slakt gengi Spurs- liðsins á móti bestu liðunum sést hvergi betur en í útileikjum liðsins á móti sex efstu liðum ensku úrvalsdeildarinnar. Tottenham hefur aðeins unnið 1 af 15 útileikjum sínum (og fengið samtals 9 stig) á móti Liverpool, Chelsea, Manchester United, Manchester City og Arsenal frá því í ágúst 2014. Liverpool er sem dæmi með 5 sigra og 20 stig í 14 útileikjum á móti stóru félögunum. „Ef Tottenham vinnur ekki stóru leikina og breyta ekki þessari tölfræði þá munu þeir aldrei vinna neitt,“ sagði Jamie Carragher við Sky Sports. Jamie Carragher og Gary Neville ræddu málið betur og Neville benti á það að Tottenham hafi eytt mun minna í leikmenn sem og að meðalaldur Tottenham-liðsins er mun lægri en hinna liðanna sem skipa efstu sex sætin í ensku úrvalsdeildinni. Það má lesa meira um það hér.
Enski boltinn Mest lesið Þrjátíu leikja bann: Hljóp reiður inn á og í áttina að Elíasi Fótbolti Sagði sína hlið á skógarferðinni sem hann fór í fyrir framan allan heiminn Sport Geta komið í veg fyrir að Donald Trump mæti á Ólympíuleikana Sport Madrídingar sóttu sigur eftir mikil læti í Lissabon Fótbolti Notuðu Sturlu í leyfisleysi til að auglýsa pararáðgjöf Sport Saka verður sá launahæsti Enski boltinn Rikki G kafnaði aftur í beinni útsendingu Fótbolti Komu upp um meira svindl hjá Kanada í krullunni Sport Þrír látnir í skotárás á íshokkíleik: „Hugsanlega vegna fjölskylduerja“ Sport Utan vallar: Eins og að missa ljósleiðarann og þurfa að nota aftur gamla módemið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Saka verður sá launahæsti Salah og trúfélagar fá drykkjarhlé í miðjum leikjum Mikel Arteta óttast að tímabil Arsenal stefni í kunnuglega átt Lærisveinar Lampard höfðu betur í toppslagnum Chelsea og Manchester United hafi spurst fyrir um Klopp Hákon hélt hreinu er Brentford sló út spútnik liðið Dregið í enska bikarnum: Chelsea heimsækir Hollywood lið Wrexham Heldur ævintýri Rooney og lærisveina hans í Macclesfield áfram í kvöld? Kemur til varnar liðsfélaga sínum hjá Liverpool Tók Arsenal bara korter að tæta Wigan í sig Úrvalsdeildarliðin áfram í 16-liða úrslit Úlfarnir mörðu D-deildarliðið í leðjuslag Sneri aftur á völlinn eftir hjartastopp Perri varði víti og Leeds áfram Hristu hausinn yfir ævintýralegum klúðrum „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Flugu af öryggi áfram í fimmtu umferð Tonali tryggði Newcastle áfram eftir skelfileg afglöp Bizot C-deildarlið sló Burnley út með draumamarki Stálheppnir gegn C-deildarliðinu Þægilegt hjá City og Guéhi getur varið titilinn Finnst fátt skemmtilegra en skítkastið Teddy trúir ekki að Tottenham taki Tudor Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Chelsea ekki í neinum vandræðum í enska bikarnum Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Fyrrum þjálfari Úlfanna tekur við hjá Forest Er Thomas Frank sá versti? Tudor tekur við Tottenham „Hann er skíthræddur“ Sjá meira