Gömlu Liverpool-stjórarnir að gera góða hluti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. mars 2017 14:30 Rafael Benítez og Brendan Rodgers. Mynd/Samsett/Getty
Rafael Benítez og Brendan Rodgers eru báðir fyrrum knattspyrnustjórar Liverpool sem eru í toppmálum með sitt lið í dag. Aðeins tveir þjálfarar hafa komið Liverpool inn á topp tvö á síðustu fjórtán tímabilum. Þeim tókst ekki að gera liðið að meisturum en eru á góðri leið með að vinna sínar deildir í dag.Rafael Benítez stýrði liði Newcastle til 3-1 sigurs á Huddersfield Town í ensku b-deildinni í gær og liðið hefur nú fimm stiga forskot á Brighton & Hove Albion á toppi deildarinnar. Tvö efstu liðin fara beint upp og Newcastle hefur ellefu stiga forskot á lið Huddersfield sem er í þriðja sætinu. Það virðist því fátt koma í veg fyrir að Newcastle endurheimti sæti sitt í ensku úrvalsdeildinni en liðið hefur unnið góða útisigra á liðunum í öðru og þriðja sæti á síðustu fjórum dögum, fyrst 2-1 sigur á Brighton á þriðjudagskvöldið og svo 3-1 sigur á Huddersfield í gær. Rafael Benítez var knattspyrnustjóri Liverpool frá júní 2004 til júní 2010 og liðið vann fjóra titla undir hans stjórn. Liverpool vann 196 af 350 leikjum sínum undir stjórn Benítez eða 56 prósent leikjanna.Brendan Rodgers var rekinn sem knattspyrnustjóri Liverpool í október 2015 en tók við liði Celtic í sumar. Celtic er taplaust og hefur unnið 26 af 27 deildarleikjum undir hans stjórn en liðið hans er nú með 27 stiga forskot á toppi skoski úrvalsdeildarinnar. Celtic sem er 57 mörk í plús í markatölu (73-16) hefur unnið 22 síðustu deildarleiki sína eða alla leiki í skosku úrvalsdeildinni síðan liðið gerði 2-2 jafntefli við Inverness CT 18. september. Celtic vann Inverness 4-0 á sama stað í vikunni sem leið. Rodgers gerði Celtic líka að skoskum deildabikarmeisturum í lok nóvember eftir 3-0 sigur á Aberdeen í úrslitaleik á Hampden Park í Glasgow. Brendan Rodgers var knattspyrnustjóri Liverpool frá júní 2012 til október 2015 og liðið varð í 2. sæti í ensku úrvalsdeildinni undir hans stjórn tímabilið 2013-14. Liverpool vann 83 af 166 leikjum sínum undir stjórn Rodgers eða 50 prósent leikjanna.
Enski boltinn Mest lesið „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Körfubolti Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti Tyrkneska hlaupatilraunin mistókst Sport Vignir Vatnar sneri upp á Evrópumeistara Sport Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Íslenski boltinn Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa Fótbolti Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Mark Alberts ekki nóg og Crystal Palace upplifði sögulegt kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Rose sagður taka við af Iraola Villa gæti sent Chelsea í Meistaradeild Evrópu Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjá meira