Man. City hefur eytt meira en 43 milljörðum í að styrkja vörnina sína Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júlí 2017 07:00 Benjamin Mendy er orðinn dýrasti varnarmaður heims. Mynd/Twitter-síða Man. City
Það er sagt að vörnin vinni titla og forráðamenn Manchester City ætla að greinilega að láta reyna á þá kenningu ef marka má hvað félagið er tilbúið að eyða miklum pening í að styrkja sig á þeim enda vallarins. Í gegnum tíðina hafa stóru fótboltafélögin út í Evrópu eytt langmestum peningi í sóknarmenn og miðjumenn en varnarmenn og markmenn hafa aftur á móti farið á milli félaga fyrir miklu minni pening. Enska úrvalsdeildarliðið Manchester City hefur ekki fetað sömu slóð á sumarmarkaðnum síðustu ár. Þar á bær er ekki síður verið að eyða risaupphæðum í varnarmenn og markverði. Manchester City leikur gegn West Ham á Laugardalsvelli þann 4. ágúst næstkomandi og líklegt að ein dýrasta varnarlína heims verði þar í eldlínunni. Bara í sumar hefur Manchester City keypt tvo bakverði, markvörð og miðvörð fyrir samtals 164 milljónir punda eða 22,6 milljarða íslenskra króna. Tvisvar hefur City gert leikmann að dýrasta varnarmanni sögunnar, fyrst með kaupum á Kyle Walker frá Tottenham og svo aftur með kaupum á Benjamin Mendy frá Mónakó. Ef við förum aftur til 2014 þá hefur City eytt meira en 300 milljónum punda í leikmenn sem spila annaðhvort í vörn eða í marki. 307 milljónir punda í átta leikmenn sem þýðir að hver hefur kostað meira en 38 milljónir punda að meðaltali. 307 milljónir punda eru 42,3 milljarðar íslenskra króna. Knattspyrnustjórinn Pep Guardiola taldi sig greinilega þurfa að styrkja varnarleik liðsins á síðustu leiktíð. Eitt besta dæmið um það var þegar City datt úr úr Meistaradeildinni á móti Mónakó þrátt fyrir að skora sex mörk í tveimur leikjum á móti franska liðinu. Hér fyrir neðan má sjá lista yfir söfnun City á varnarmönnum.Stórkaup Manchester City á varnarmönnum og markvörðum síðustu sumur:2014 Miðvörðurinn Eliaquim Mangala frá Porto á 42 milljónir punda2015 Miðvörðurinn Nicolás Otamendi frá Valencia á 38 milljónir punda2016 Markvörðurinn Claudio Bravo frá Barcelona á 15 milljónir punda Miðvörðurinn John Stones frá Everton á 48 milljónir punda2017 Markvörðurinn Ederson frá Benfica á 35 milljónir punda Bakvörðurinn Kyle Walker frá Tottenham á 50 milljónir punda Miðvörðurinn Danilo frá Real Madrid á 27 milljónir pund Bakvörðurinn Benjamin Mendy frá Mónakó á 52 milljónir pundaSamtals: 307 milljónirpunda
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti Dagskráin í dag: Man. Utd og lærisveinar Eiðs þurfa að svara fyrir sig Sport Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Fótbolti Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Sjá meira