Mourinho segir ómögulegt að hvíla Lukaku Arnar Geir Halldórsson skrifar 30. september 2017 09:01 Romelu Lukaku og Jose Mourinho Vísir/Getty
Belgíski sóknarmaðurinn Romelu Lukaku hefur farið frábærlega af stað í búningi Manchester United eftir að hafa verið keyptur til enska stórliðsins frá Everton í sumar. Lukaku hefur skorað tíu mörk í níu leikjum og verður í eldlínunni í dag þegar Man Utd fær Crystal Palace í heimsókn. Jose Mourinho, stjóri Man Utd, hrósar Belganum í hástert. Þeir eru nú að vinna aftur saman en síðast þegar þeir unnu saman hjá Chelsea losaði Mourinho sig við Lukaku. „Hann leggur mjög hart að sér og hugsar vel um sig. Hann lifir mjög heilbrigðu lífi og er metnaðarfullur. Hann á eftir að verða einn besti leikmaður heims. Kröfurnar hjá Manchester United eru svakalegar og hann stenst þær.“ Lukaku hefur spilað alla leiki Man Utd í ensku úrvalsdeildinni til þessa og segir Mourinho að það komi ekki til greina að gefa þessum 24 ára gamla markaskorara hvíld. „Á meðan við erum án Zlatan getum við ekki leyft okkur að hvíla Lukaku, sérstaklega á meðan Marcus Rashford er að spila aðra stöðu. Þar til Zlatan snýr aftur getum við ekki leyft níunni okkar að hvíla sig líkt og við reynum að leyfa öðrum leikmönnum að gera,“ segir Mourinho. Framundan er landsleikjahlé og er Lukaku að sjálfsögðu í landsliðshópi Belga. Belgía hefur tryggt sæti sitt á HM í Rússlandi og vonast stuðningsmenn Man Utd eftir því að Roberto Martinez noti Lukaku sparlega í komandi landsliðsverkefni. „Það er á ábyrgð Roberto og það er hans ákvörðun hvort hann spilar Lukaku eða ekki. Ég get ekki haft áhrif á þá ákvörðun,“ segir Mourinho.
Enski boltinn Mest lesið Eldræða Rikka G í beinni: „Að gera drengnum þetta er bara ljótt“ Fótbolti „Sorgmæddur en stoltur“ Fótbolti Viggó á leið í topplið í bestu deild í heimi? Handbolti Rosaleg dagskrá Man. City að hefjast Enski boltinn Liverpool tapaði aftur í Tyrklandi Fótbolti Bæjarar gengu frá Atalanta Fótbolti Hrósar Heimi og vill að hann hermi eftir Arsenal Fótbolti Fleury fór á kostum gegn FH Íslenski boltinn Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Íslenski boltinn Íslendingaliðið tapaði stórt en fer í umspil Handbolti Fleiri fréttir Rosaleg dagskrá Man. City að hefjast Barton ákærður fyrir líkamsárás Tudor segir að fallslagurinn sé mikilvægari en Meistaradeildin Segir ógeðslegt að gera grín að vítaklúðrum West Ham áfram eftir spennutrylli og sigur í vítaspyrnukeppni City og Liverpool mætast í átta liða úrslitunum Fékk rúmlega þrettán milljóna króna sekt fyrir ummæli um dómara Liverpool og Man. Utd kvarta yfir hryllingi frá Grok Fimmtán ára fótboltastelpa hneig niður í leik og lést Leeds í átta liða úrslit bikarsins í fyrsta sinn síðan 2003 Stuðningsmaður Newcastle tryggði óvæntasta sigur helgarinnar gegn Sunderland Guardiola ætlar að skella sér í frí „Á þriggja daga fresti líður mér öðruvísi“ Marmoush skaut City áfram í bikarnum í fjarveru Haaland Garnacho í aðalhlutverki í sigri á Hollywood-liðinu Skrifar undir nýjan samning við Liverpool Madueke og Eze afgreiddu C-deildarliðið Íhuga brottrekstur eftir minna en mánuð „Ég hef ekkert að sanna“ Vill breytingar og býður dómurum á æfingasvæðið Segir dómgæslu skaða titilvonir Man City Man United gerði hærra tilboð í Bale Arsenal-menn létu bíða eftir sér í 30 mínútur og 51 sekúndu Sjáðu mörkin sem fengu stuðningsmenn Tottenham til að fara í hálfleik Algjört hrun Spurs sem er stigi frá fallsæti Wirtz snúi aftur gegn Wolves „Aðeins eitt lið sem reyndi að spila fótbolta í dag“ Sjáðu hælspyrnuna sem særði City, Dana klára United og þrennu Joao Pedro Fámennt lið Newcastle fyrst til að vinna lærisveina Carrick Joao Pedro sá um svakalegan viðsnúning Sjá meira