Cech talar tungum í marki Arsenal Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. janúar 2016 22:00 Petr Cech og Per Mertesacker. Vísir/Getty
Petr Cech, markvörður Arsenal og tékkneska landsliðsins í fótbolta, er mikill tungumálamaður og hann nýtir sér það vel í fótboltanum. Cech hefur nú sagt frá því að hann noti þrjú mismundandi tungumál þegar hann talar við varnarmenn sína hjá Arsenal og ekkert þeirra er hans móðurmál. Petr Cech bætti met David James þegar hann hélt hreinu á móti Bournemouth í síðasta deildarleik ársins 2015 en enginn hefur nú haldið oftar hreinu í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Petr Cech hefur átt magnaðan feril í enska boltanum og er margfaldur meistari með Chelsea en hann á nú góða möguleika á að vinna titla á sínu fyrsta tímabili með Arsenal. Petr Cech talar fimm tungumál, tékknesku, ensku, frönsku, spænsku og þýsku, og það hefur komið sér vel í boltanum enda mikið af útlendingum í ensku liðunum. Cech nýtir sér tungumálakunnáttu sína í samskiptum sínum við varnarmennina. „Ég tala við bakverðina (Nacho Monreal og Hector Bellerin) á spænsku, ég tala við Laurent Koscielny á frönsku og svo tala ég við Per Mertesacker á ensku af því að það kemur alveg eins út fyrir okkur tvo," sagði Petr Cech í viðtali við Mirror. „Stundum vita erlendir leikmenn ekki hvað þú ert að segja. Það er því markvissara og öruggara að tala við þá á þeirra eigin tungumáli," sagði Cech. Petr Cech var að mörgum talinn vera síðasta púslið sem Arsenal-liðið vantaði en liðið situr á toppi deildarinnar um áramótin. Það eru margir farnir að sjá það fyrir sér að Arsenal-liðið vinni enska meistaratitilinn í fyrsta sinn í tólf ár. Petr Cech yfirgaf Chelsea þegar liðið var enskur meistari og á því möguleika á því að vinna enska titilinn tvö ár í röð með tveimur liðum. „Það var ekki auðveld ákvörðun að fara frá Chelsea en ég vildi komast til liðs sem ætti möguleika á því að vinna. Ef ég hefði ekki trúað á það að Arsenal gæti unnið titilinn þá hefði ég aldrei komið hingað," sagði Cech. „Ég spila ekki fótbolta aðeins vegna ánægjunnar að spila og keppa á móti bestu leikmönnunum því ég vil eiga möguleika á því að vinna leiki," sagði Cech. Hann vann enska meistaratitilinn fjórum sinnum með Chelsea og enska bikarinn vann hann líka fjórum sinnum frá 2004 til 2015.
Enski boltinn Mest lesið Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Handbolti Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Elvar úr leik á EM Handbolti Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Handbolti Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu Handbolti „Mér líður bara ömurlega“ Handbolti Svona meiddist Elvar Handbolti Elvar kemur inn fyrir Elvar Handbolti „Langt frá því að vera faglegt“ hjá dómaraparinu frá Norður-Makedóníu Handbolti Fleiri fréttir Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Sjá meira