Enski boltinn

Styttist í endurkomu Jagielka

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jagielka hefur verið í herbúðum Everton frá 2007.
Jagielka hefur verið í herbúðum Everton frá 2007. vísir/getty
Það styttist í að Phil Jagielka, varnarmaður Everton, snúi aftur á völlinn eftir hnémeiðsli.

Jagielka, sem er fyrirliði Everton, meiddist í leik gegn Arsenal 24. október og hefur ekkert spilað síðan þá.

Roberto Martínez, knattspyrnustjóri Everton, segir þó að Jagielka verði líklega ekki orðinn klár í tæka tíð fyrir leikinn gegn Tottenham á sunnudaginn.

"Það er óvíst hvort hann verður orðinn klár um helgina en hann verður orðinn leikfær á næstum 7-10 dögum," sagði Martínez.

Everton hefur verið í vandræðum með varnarleikinn í vetur en liðið hefur fengið á sig 12 mörk í síðustu sex leikjum sínum og 28 mörk alls í 19 deildarleikjum. Aðeins sex lið hafa fengið á sig fleiri mörk í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.

Everton er í 11. sæti úrvalsdeildarinnar með 26 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×