Enski boltinn

Hiddink: Þurftum á þessum sigri að halda

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Hiddink gefur skipanir á hliðarlínunni í dag.
Hiddink gefur skipanir á hliðarlínunni í dag. Vísir/getty
Guus Hiddink, knattspyrnustjóri Chelsea, var að vonum sáttur eftir sannfærandi 3-0 sigur á Crystal Palace en þetta var fyrsti sigur Chelsea síðan Hiddink tók við liðinu á ný.

Sjá einnig:Chelsea sýndi sitt rétta andlit í sannfærandi sigri | Sjáðu mörkin

Eftir tvö jafntefli í röð gegn Manchester United og Watford var allt annað að sjá til liðsins í dag og sýndu margir leikmenn loksins sitt rétta andlit eftir slaka frammistöðu fyrri hluta tímabilsins.

„Þetta var frábær frammistaða og verðskuldaður sigur en við verðum að stilla væntingarnar. Þetta er fyrsti sigurinn eftir tvö jafntefli í röð og en þurftum svo sannarlega á þessu að halda,“ sagði Hiddink sem sagði að það vantaði ekki gæðin í leikmannahóp Chelsea.

„Það fer ekki framhjá neinum að það eru gæði í leikmannahópnum en það á það til að gerast að meistaralið séu kærulaus. Það getur verið erfitt að vinna sig upp úr því,“ sagði Hiddink sem segir stefnuna á að ná einum af fjóru efstu sætum deildarinnar.

„Það er mikið eftir af tímabilinu og við munum halda áfram að berjast á meðan möguleikinn á sæti í Meistaradeildinni er til staðar. Þetta er sterk deild en ef við spilum jafn vel og í dag gefum við okkur möguleikann á því að færa okkur upp töfluna,“ sagði Hiddink.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×