Erlent

Jóhannes Páll páfi átti í nánu sambandi við gifta konu

Atli Ísleifsson skrifar
Karol Wojtyla kardináli var gerður að páfa árið 1978.
Karol Wojtyla kardináli var gerður að páfa árið 1978. Vísir/AFP
Jóhannes Páll páfi II átti um þriggja áratuga skeið í nánu sambandi við gifta konu.

Þetta kemur fram í frétt BBC sem byggir á fleiri hundruð ljósmynda og bréfa sem send voru milli páfans og konunnar.

Bréfunum milli páfans og pólsk-bandaríska heimspekingsins Anna-Teresa Tymieniecka hefur um árabil verið haldið frá almenningi á þjóðarbókasafni Póllands.

Skjölin sýna lítt þekkta hlið á manninum sem lést árið 2005. Ekkert bendi þó til þess að hann hafi rofið skírlífsheit sitt.

BBC greinir frá því að vinskapur þeirra hafi myndast árið 1973 þegar Tymieniecka hafði samband við hinn pólska Karol Wojtyla kardinála, erkibiskupinn í Krakow, varðandi bók um heimspeki sem hann hafði skrifað.

Tymieniecka ferðaðist frá Bandaríkjunum til Póllands til að ræða verkið við höfundinn og hófust svo bréfaskipti þeirra í millum. Bréfin sýna fram á að til að byrja með hafi bréf Wojtyla verið formlegs eðlis, en þegar líða tók á vinskapinn urðu þau sífellt persónulegri.

Síðar hafi þau ákveiðið að vinna saman að endurbættri útgáfu af bók Wojtyla og hittust margoft, ýmist í viðurvist ritara erkibiskupsins eða ein.

Fram kemur að Wojtyla hafi boðið Tymieniecka að slást í för með honum í göngu- og skíðaferðir, en einnig fjölmennu tjaldferðalagi. Þá hafi hún einnig heimsótt hann í Vatikanið, en Wojtyla var gerður að páfa árið 1978 og skipaði embættið allt til dauðadags.

Í bréfunum má sjá að Tymieniecka virðist hafa borið miklar tilfinningar í garð Wojtyla þar sem í svari hans skömmu eftir einn fund þeirra segist hann eiga í vandræðum með að skilgreina vináttu þeirra með tilliti til trúarinnar.

Tymieniecka lést árið 2014.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×