Krefja Charlie Hebdo skaðabóta vegna skopteikninga sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 12. september 2016 23:52 Eyðileggingin í Amatrice er mikil. vísir/EPA
Stjórnvöld í ítalska bænum Amatrice hyggjast leggja fram kæru á hendur franska satírutímaritinu Charlie Hebdo vegna skopteikninga sem birtust í blaðinu í kjölfar mannskæðra jarðskjálfta á svæðinu í síðasta mánuði. Á myndunum er fórnarlömbum jarðskjálftanna stillt upp sem réttum á borð við pasta og lasagna og er yfirskrift þeirra „jarðskjálftar að hætti Ítala.“ Charlie Hebdo sued by quake-hit Amatrice over cartoon https://t.co/LYEAT4iTjT pic.twitter.com/DjzbPuGrYB— BBC News (World) (@BBCWorld) September 12, 2016 Stjórnvöld í Amatrice segja að um sé að ræða fáránlegar og tilgangslausar myndir sem séu einungis til þess fallnar að móðga hina látnu. Hafa þau því farið fram á að saksóknari leggi fram kæru vegna meiðyrða, og krefjast skaðabóta. Lögmaður bæjarins segir að vinni Ítalir sigur í málinu muni skaðabæturnar renna óskertar til hinna slösuðu. Tæplega þrjú hundruð manns týndu lífi í jarðskjálftunum í ágúst og er eyðileggingin vegna þeirra gríðarleg, þá einna helst í bænum Amatrice. Rannsókn stendur nú yfir á mögulegri spillingu í úthlutun verksamninga og almennu eftirliti með byggingum á Ítalíu, en sérfræðingar áætla að minnsta kosti sjötíu prósent allra bygginga í landinu séu ekki byggðar til að standa af sér jarðskjálfta. Charlie Hebdo er reglulega gagnrýnt, og jafnvel fordæmt, vegna teikninga sinna. Nýlega fordæmdu stjórnvöld í Rússlandi tímaritið vegna skopteikninga af mannskæðu flugslysi og þá var það einnig fordæmt fyrir teikningar af þriggja ára dreng sem drukknaði á flótta frá Sýrlandi, svo fátt eitt sé nefnt.
Tengdar fréttir Rússar fordæma skopmyndir í Charlie Hebdo Stjórnvöld í Rússlandi hafa fordæmt skopmyndir sem birtust í nýjasta tímariti Charlie Hebdo af flugslysinu á Sinæ skaga um síðustu helgi. 7. nóvember 2015 17:59 Charlie Hebdo minnist þess að eitt ár er liðið frá árásinni á skrifstofur blaðsins Sérstakt eintak af ádeilublaðinu Charlie Hebdo kom út í dag. Fimm teikningar eftir teiknara sem létust í árásinni á skrifstofur blaðsins eru í sérútgáfunni. 6. janúar 2016 23:30 Charlie Hebdo fordæmt vegna skopmynda af Aylan Kurdi Franska satírutímaritið Charlie Hebdo hefur verið fordæmt víða um heim vegna skopmyndar sem birtist í blaðinu í dag. 13. janúar 2016 19:56 Minnst 247 látnir á Ítalíu Fjölmargra er saknað og búist er við að tala látinna muni hækka meira. 25. ágúst 2016 07:30 Mest lesið Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Innlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Innlent „Auðvitað hef ég íhugað það“ Innlent Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Innlent Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Innlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Innlent Fleiri fréttir Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Einn í lífshættu eftir að bíl var ekið inn í þvögu Myndir af lífinu um borð í hantaveiruskipinu Farage sextánfaldar sætin á sveitarstjórnarstiginu Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Venstre fá umboð til að mynda ríkisstjórn Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu Frederiksen á fund konungs vegna þráteflis Sátu um tóman banka í sex tíma Samföngum Maxwell refsað fyrir að tjá sig Stærsta haldlagning á rafmynt í sögu Svíþjóðar Umsátur í Þýskalandi: Bankarán varð að gíslatöku Segjast aldrei hafa séð Epstein-bréfið meinta áður Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Farage og félagar í Reform margfalda styrk sinn í sveitarstjórnum Englands Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Vopnahléið enn í gildi en alls óvíst um varanlegt samkomulag Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Handtaka kínverskan meintan njósnara í Noregi Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Kortleggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Trump enn með tangarhald á Repúblikanaflokknum Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Franskur floti á leið til Persaflóa Sjá meira
Rússar fordæma skopmyndir í Charlie Hebdo Stjórnvöld í Rússlandi hafa fordæmt skopmyndir sem birtust í nýjasta tímariti Charlie Hebdo af flugslysinu á Sinæ skaga um síðustu helgi. 7. nóvember 2015 17:59
Charlie Hebdo minnist þess að eitt ár er liðið frá árásinni á skrifstofur blaðsins Sérstakt eintak af ádeilublaðinu Charlie Hebdo kom út í dag. Fimm teikningar eftir teiknara sem létust í árásinni á skrifstofur blaðsins eru í sérútgáfunni. 6. janúar 2016 23:30
Charlie Hebdo fordæmt vegna skopmynda af Aylan Kurdi Franska satírutímaritið Charlie Hebdo hefur verið fordæmt víða um heim vegna skopmyndar sem birtist í blaðinu í dag. 13. janúar 2016 19:56
Minnst 247 látnir á Ítalíu Fjölmargra er saknað og búist er við að tala látinna muni hækka meira. 25. ágúst 2016 07:30