Van Gaal kallar Gylfa og félaga draugaliðið sitt | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. janúar 2016 12:30
Louis van Gaal og lærisveinar hans í Manchester United fögnuðu ekki sigri í átta síðustu leikjum ársins 2015 en fyrsti leikurinn á nýju ári verður á móti Gylfa Þór Sigurðssyni og félögum í Swansea City. United-liðið vann síðast leik 21. nóvember síðastliðinn þegar liðið vann 2-1 sigur á Watford en sýndi betri leik í markalausu jafntefli við Chelsea í síðasta leik. Gylfa og félögum hefur gengið afar vel með lið Manchester United síðan að Louis van Gaal settist í stjórastólinn. Swansea hefur unnið þrjá deildarleiki í röð á móti Manchester United og Gylfi er með eitt mark og tvær stoðsendingar í þessum þremur sigurleikjum. „Swansea hefur verið eins og ég kalla það, mitt draugalið. Við erum að horfa á það að láta okkar fyrsta verk á árinu vera að ná loksins sigri á móti þeim," sagði Louis van Gaal á blaðamannafundi fyrir leikinn. Swansea hefur unnið síðustu þrjá leiki liðanna 2-1. „Ég veit að þetta verður erfiður leikur og við verðum að skapa og nýta okkar færi ef við ætlum að enda þessa bið eftir sigri. Það er samt markmiðið að gefa öllum hjá félaginu, starfsmönnun, leikmönnum og stuðningsmönnum, ástæðu til þess að brosa á nýjan leik," sagði Louis van Gaal. „Við fórum í gegnum margar og mismunandi tilfinningar á árinu 2015 en endirinn á árinu var ekki sá sem við vonuðumst eftir. Þegar lið hefur ekki unnið í mörgum leikjum í röð þá er sjálfstraustið lítið. Stuðningur úr stúkunni getur gefið liðinu það sem vantar upp á," sagði Louis van Gaal. Liðin mætast á Old Trafford á morgun en síðast þegar liðin spiluðu í leikhúsi draumanna í Manchester þá lagði Gylfi Þór Sigurðsson upp fyrra markið og skoraði síðan sigurmarkið sjálfur.
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Fleiri fréttir Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Sjá meira