Enski boltinn

Van Gaal kallar Gylfa og félaga draugaliðið sitt | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Louis van Gaal og lærisveinar hans í Manchester United fögnuðu ekki sigri í átta síðustu leikjum ársins 2015 en fyrsti leikurinn á nýju ári verður á móti Gylfa Þór Sigurðssyni og félögum í Swansea City.

United-liðið vann síðast leik 21. nóvember síðastliðinn þegar liðið vann 2-1 sigur á Watford en sýndi betri leik í markalausu jafntefli við Chelsea í síðasta leik.

Gylfa og félögum hefur gengið afar vel með lið Manchester United síðan að Louis van Gaal settist í stjórastólinn. Swansea hefur unnið þrjá deildarleiki í röð á móti Manchester United og Gylfi er með eitt mark og tvær stoðsendingar í þessum þremur sigurleikjum.

„Swansea hefur verið eins og ég kalla það, mitt draugalið. Við erum að horfa á það að láta okkar fyrsta verk á árinu vera að ná loksins sigri á móti þeim," sagði Louis van Gaal á blaðamannafundi fyrir leikinn. Swansea hefur unnið síðustu þrjá leiki liðanna 2-1.

„Ég veit að þetta verður erfiður leikur og við verðum að skapa og nýta okkar færi ef við ætlum að enda þessa bið eftir sigri. Það er samt markmiðið að gefa öllum hjá félaginu, starfsmönnun, leikmönnum og stuðningsmönnum, ástæðu til þess að brosa á nýjan leik," sagði Louis van Gaal.

„Við fórum í gegnum margar og mismunandi tilfinningar á árinu 2015 en endirinn á árinu var ekki sá sem við vonuðumst eftir. Þegar lið hefur ekki unnið í mörgum leikjum í röð þá er sjálfstraustið lítið. Stuðningur úr stúkunni getur gefið liðinu það sem vantar upp á," sagði  Louis van Gaal.

Liðin mætast á Old Trafford á morgun en síðast þegar liðin spiluðu í leikhúsi draumanna í Manchester þá lagði Gylfi Þór Sigurðsson upp fyrra markið og skoraði síðan sigurmarkið sjálfur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×