Enski boltinn

Wenger ætlar að bæta við leikmanni í janúarglugganum

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Wenger var ósáttur með ýmislegt í naumum 1-0 sigri á Newcastle í gær.
Wenger var ósáttur með ýmislegt í naumum 1-0 sigri á Newcastle í gær. Vísir/Getty
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, segir að Arsenal muni að minnsta kosti ganga frá kaupunum á einum leikmanni í janúarglugganum.

Skytturnar eru með tveggja stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar þegar mótið er hálfnað en það vakti mikla athygli þegar Arsenal keypti aðeins einn leikmann síðasta sumar.

Eftir að hafa horft upp á leikmenn á borð við Alexis Sanchez, Santi Cazorla, Theo Walcott og Alex Oxlade-Chamberlain meiðast undanfarnar vikur segist Wenger ætla að bæta við sig leikmanni í von um fyrsta meistaratitilinn í ellefu ár.

„Þegar við fáum alla leikmennina aftur úr meiðslum verðum við með sterkari leikmannahóp en við munum bæta við hópinn að minnsta kosti einum leikmanni. Þegar þú ert í þessari stöðu að vera að berjast um titilinn er erfitt að þurfa að treysta á leikmenn úr unglingastarfinu. “




Fleiri fréttir

Sjá meira


×