Enski boltinn

Aron Einar lék allan leikinn í naumum sigri

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Aron Einar Gunnarsson í leik með Cardiff.
Aron Einar Gunnarsson í leik með Cardiff. Vísir/getty
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, var í byrjunarliði Cardiff og lék allan leikinn í 1-0 sigri á Blackburn á heimavelli í dag.

Cardiff hafði aðeins fengið eitt stig úr síðustu þremur leikjum sínum fyrir leik dagsins og mátti ekki við því að tapa stigum í baráttunni um sæti í umspilinu.

Joe Mason skoraði eina mark Cardiff í leiknum en með sigrinum skaust Cardiff upp í 9. sæti Championship-deildarinnar, tveimur stigum frá Ipswich í síðasta umspilssæti Championship-deildarinnar.

Jóhann Berg Guðmundson byrjaði á varamannabekk Charlton í dag en lék seinni hálfleikinn í 1-1 jafntefli gegn Nottingham Forest á heimavelli Charlton í dag.

Jóhann kom inná í stöðunni 0-1 en leikmönnum Charlton tókst að jafna metin um miðbik seinni hálfleiks og halda út síðusta korter leiksins eftir að hafa misst mann af velli með rautt spjald.

Charlton situr áfram í fallsæti að 25 leikjum loknum en náði að saxa á Bristol City og Rotherham í baráttunni um öruggt sæti í deildinni á næsta ári.

Þá lék Eggert Gunnþór Jónsson allar 90. mínútur leiksins í 2-0 sigri Fleetwood Town á Bury í 1. deildinni en með sigrinum lyfti Fleetwood sér upp úr fallsæti í bili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×