Pabbi nýja Liverpool-stráksins tók vegabréfið af honum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. desember 2015 14:00 Vísir/Getty
Ef marka má viðtal sem birtist við faðir Marko Grujic í serbneska blaðinu Blic í dag er hann afar ósáttur við að sonur hans hafi verið seldur til Liverpool. Grujic er nítján ára Serbi sem varð heimsmeistari með U-20 liði Serba í sumar. Rauða stjarnan frá Belgrad hefur staðfest að það hafi tekið tilboði Liverpool upp á 5,1 milljón punda í kappann, jafnvirði um 988 milljóna króna. „Allir hjá Rauðu stjörnunni hefðu viljað halda Marko Grujic í tíu ár en fjárhagsstaða félagsins neyðir okkur til að taka aðra ákvörðun,“ sagði í yfirlýsingu félagsins.Sjá einnig: Klopp búinn að ganga frá fyrstu kaupunum sem stjóri Liverpool Grujic eldri, Goran, telur að það muni eyðileggja son hans að fara til Englands. Hann segir að eina ástæðan fyrir því að Rauða stjarnan í Belgrad hafi samþykkt að selja strákinn er að félagið eigi í fjárhagsvandræðum. „Þeim tókst að sannfæra hann um að skrifa undir samninginn eftir að hafa hringt í hann tíu sinnum á dag,“ sagði faðirinn í umræddu viðtali. „Það er líka verið að þrýsta á hann í búningsklefanum. Sumir leikmenn telja að þeir fái ekki greidd laun nema að félagið selji leikmenn.“ „Ég er með vegabréfið hans og lýsi því yfir að Marko er ekki á leiðinni neitt,“ sagði Goran en óvíst er að það dugi til að koma í veg fyrir vistaskipti drengsins. Hann bendir á mörg dæmi þess að ungir serbneskir leikmenn hafi ekki náð að spjara sig í Englandi. „Bojan Djorjic, Milos Veljkovic, Adem Ljajic, Zoran Tosic, Lazar Markovic, Danilo Pantic. Á ég að halda áfram?“ „Svo eru það Branislav Ivanovic og Nemanja Vidic. Báðir komu til Englands sem reyndir leikmenn,“ bætir hann við. „Þekktu barnið þitt. Ég veit að hann hefur hæfileikana til að spila í Englandi en þetta er ekki deildin fyrir hann núna.“
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Handbolti Fleiri fréttir Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Sjá meira