Haukur Ingi: Ekki algjört svartnætti Tómas Þór Þórðarson skrifar 11. júlí 2015 07:00 Haukur Ingi var aðstoðarþjálfari Fylkis þegar liðið bjargaði sér frá falli sumarið 2013. Fréttablaðið/daníel
Keflavík á fyrir höndum tvo gríðarlega mikilvæga leiki í næstu tveimur umferðum Pepsi-deildar karla í fótbolta. Liðið mætir tveimur liðum í fallbaráttunni; Leikni og Víkingi, á næstu dögum, en Keflvíkingar byrja á leik gegn Leikni á mánudagskvöldið í elleftu umferð. „Við erum meðvitaðir um að við þurfum að ná í sem flest stig úr hverjum einasta leik,“ segir Haukur Ingi Guðnason, annar þjálfara Keflavíkur, við Fréttablaðið. Keflavík vann fyrsta leikinn sem hann og Jóhann B. Guðmundsson stýrðu Keflavík í gegn ÍBV en hafa síðan tapað þremur í röð á móti Val, ÍA og Stjörnunni. „Tveimur heimaleikjum töpuðum við á sjálfsmarki þannig að þetta hefur verið svolítið stöngin út hjá okkur. Við vonum að menn haldi áfram og missi ekki trúna. Þetta verður samt erfiðara með hverjum leiknum sem við töpum,“ segir Haukur Ingi. Keflavík er á botninum með fjögur stig og -13 í markatölu. Fylkir er eina liðið sem hefur verið með fjögur stig eða færri (3 stig, -10 árið 2013) en bjargað sér frá falli í sjö ára sögu tólf liða deildar. Haukur Ingi var aðstoðarþjálfari þess liðs. „Það var ýmislegt sem gerðist á þeim tíma. Fyrri helmingur mótsins var eins og undirbúningstímabil því leikmenn voru að spila sig saman. Það var samt aldrei neitt stress því maður sá alveg að eitthvað var að gerast,“ segir Haukur Ingi og staðan er svipuð núna segir hann: „Við sjáum alveg glætu handan hornsins. Það er ekki bara algjört svartnætti og engin von. En menn þurfa samt að fara að spýta í lófana því þetta gerist ekki af sjálfu sér.“ - tom
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Fáránleg hegðun á Hlíðarenda: Plastglas í höfuð og miðfingur á loft Fótbolti Allt liðið gekk út á völl í Súperman búningum Fótbolti Alfreð og fleiri jálkar með óvænt félagaskipti yfir í Augnablik Íslenski boltinn Er Liverpool að styrkja rangan enda vallarins? Enski boltinn Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Enski boltinn Lýsir því hvernig Dahlmeier dó Sport Nýju leikmenn Liverpool komnir með númer Enski boltinn Gaf tannlækninum teinanna sína Fótbolti Sagðir vilja borga helminginn fyrir Isak í ár og hinn helminginn ári síðar Enski boltinn Liðin sem verða að gera betur á markaðnum Enski boltinn Fleiri fréttir Kristján hættur sem þjálfari Vals en Matthías verður áfram Skoraði ekki í leiknum en dómararnir skráðu samt á hana tvö mörk Orri Hrafn í KR og getur spilað í Eyjum Alfreð og fleiri jálkar með óvænt félagaskipti yfir í Augnablik Selvén aftur í Vestra „Sætt að þetta gerðist á 91. mínútu“ KR sækir Arnar Frey af bekknum hjá HK Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 3-2 | Blikar í úrslit eftir ótrúlega endurkomu „Nákvæmlega það sem ég hef verið að sjá fyrir mér“ KSÍ sektar Árbæ um 250 þúsund krónur ÍR aftur á toppinn Hin efnilega Rebekka Sif til Nordsjælland frá Gróttu Sunna Rún til liðs við Íslandsmeistarana Uppbótartíminn: Hvernig lið er Stjarnan? „Ætlum að fara þarna og sækja þennan bikar“ Njarðvík á toppinn Uppgjörið: Valur - FH 2-3 | Hafnfirðingar í úrslit í fyrsta sinn FH konur ætla að skrifa söguna í kvöld KR missir sinn efnilegasta mann „Rosalega vitlaust á þessum tímapunkti í leiknum“ Trúnaðarbrestur og formaðurinn hættur Ekroth skúrkurinn í Stúkunni: „Hann grípur um andlitið, hann veit af þessu“ Sjáðu markið sem var stolið, rauða spjaldið og alla markaveislu Stjörnunnar Arftakinn sagður koma frá Hlíðarenda Uppselt á Evrópuleik KA á Akureyri KR lætur þjálfarateymið fjúka Uppgjörið: Stjarnan - Afturelding 4-1 | Snéru við dæminu manni fleiri Tómas Bent nálgast Edinborg Með átta mörk og sex stoðsendingar í sama leiknum Segja Jóhannes kosta tæpar tíu milljónir króna Sjá meira