Allir fá að auglýsa á Instagram Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 6. júní 2015 12:00 Facebook er stórhuga þegar framtíð Instagram er annars vegar. VÍSIR/GETTY
Facebook hyggst stórefla auglýsingaflæði á Instagram og geta nú öll fyrirtæki nýtt þenna ört stækkandi miðil. Auglýsingum á Instagram kemur til með að fjölga verulega á næstunni. Facebook hefur tilkynnt að öll fyrirtæki geti nú auglýst með samskiptaforritinu en ekki nokkur vel valin eins og hingað til. Í yfirlýsingu frá Facebook segir að fyrirtækið muni á næstunni efla greiningu sína á áhugamálum, aldri og lýðfræðilegum einkennum notenda sinna til að stækka gagnasöfn sín sem þegar eru risavaxin. Þá verða auglýsingarnar gagnvirkar að hluta og notendur Instagram munu geta keypt vörur í gegnum smáforritið og náð þar í önnur smáforrit sem auglýsendur vekja athygli á. „Þessar uppfærslur munu algjörlega breyta eðli og eiginleikum Instagram,“ segir Debra Aho Williamson, sérfræðingur hjá eMarketer. „Nýjar leiðir í markaðssetningu á Instagram eru einmitt það sem auglýsendur hafa beðið eftir.“ Snjallsímanotendur skipa sífellt stærri hluta af heildartekjum Facebook en þeir skiluðu fyrirtækinu 968 milljörðum króna í tekjur á síðasta ári. Það er 135,7% aukning frá árinu 2013 og er 17,4% af heildartekjum snjallsímaauglýsingageirans á heimsvísu. Aðeins Google stendur betur að vígi. Í sameiginlegri yfirlýsingu frá stjórnendum Facebook og Instagram á dögunum kemur fram að greiningarfyrirtækið Nielsen metur auglýsingaherferðir á Instagram 2,9 sinnum líklegri til að skila árangri en þær sem birtast á öðrum samfélagsmiðlum. „Fólk vill komast í kynni við fyrirtæki og þjónustu af öllum toga á Instagram, allt frá uppáhaldsfatabúðinni og veitingastöðum til stærstu vörumerkja veraldar.“
Mest lesið Kannast ekki við að aðgengi að bílastæðum sé skert Innlent Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Erlent Bærinn vilji taka hluta Smáralindar á leigu fyrir 1,5 milljarða Innlent Mojtaba Khamenei særður en óhultur Erlent Brynja Dan í óvissu um oddvitasætið í Garðabæ Innlent Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Erlent Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Erlent Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Erlent Orðhengilsháttur vill einkenna ESB-umræðuna Innlent Sjái þegar merki um að forspá um klofningu þjóðarinnar standist Innlent Fleiri fréttir Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Mojtaba Khamenei særður en óhultur Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Sex látnir eftir eldsvoða í strætisvagni Talin hafa skotið tíu skotum í átt að heimili Rihönnu Bera kennsl á fleiri möguleg fórnarlömb lögreglumanns Snúa sér aftur að kjarnorku fimmtán árum eftir Fukushima Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Íranir enn vígreifir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Sjá meira