Wijnaldum með fernu í fyrsta sigri Newcastle Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. október 2015 17:00 Wijnaldum er kominn með sex mörk í ensku úrvalsdeildinni. vísir/getty
Georginio Wijnaldum skoraði fernu þegar Newcastle vann sinn fyrsta sigur í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Lærisveinar Steve McClaren lögðu þá Norwich að velli, 6-2, í bráðskemmtilegum leik. Með sigrinum komst Newcastle upp í 18. sæti deildarinnar en liðið er nú tveimur stigum frá öruggu sæti. Fyrir leikinn í dag var Newcastle búið að skora sex mörk í fyrstu átta deildarleikjum sínum en liðið tvöfaldaði þann markafjölda í dag. Wijnadum kom Newcastle yfir á 14. mínútu eftir sendingu frá Moussa Sissoko en hann lagði upp þrjú mörk í dag. Dieumerci Mbokani jafnaði metin á 20. mínútu en sex mínútum síðar var Wijnaldum aftur á ferðinni þegar hann skallaði fyrirgjöf Sissoko í netið. Ayoze Pérez kom Newcastle í 3-1 á 33. mínútu en aðeins mínútu síðar minnkaði Nathan Redmond muninn. Staðan var 3-2 í hálfleik og allt fram á 64. mínútu þegar serbneski framherjinn Aleksandar Mitrovic skoraði frábært mark eftir sendingu Sissoko. Tveimur mínútum síðar fullkomnaði Wijnaldum þrennuna með öðru skallamarki, nú eftir sendingu frá Daryl Janmaat, og hann skoraði svo sitt fjórða mark á 85. mínútu þegar skot hans fyrir utan teig fór í varnarmann og yfir John Ruddy, markvörð Norwich.
Enski boltinn Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Sérlega gleðileg jól í ár og langt hlé á enda Sport Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Körfubolti „Allir eru hér að skemmta sér í sátt og samlyndi“ Sport „Við erum að spila hérna á móti Paragvæ nánast“ Sport Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Botnlið Fram vann óvæntan sigur á toppliði Blika Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Sjá meira