Enski boltinn

Sjáðu mörkin og tilþrifin úr leikjum dagsins í ensku úrvalsdeildinni

Anton Ingi Leifsson skrifar
Alls var 21 mark skorað í leikjunum tíu sem fóru fram í dag, annan í jólum, en heil umferð fór fram í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Flest mörkin komu á Etihad þar sem fimm mörk voru skoruð; Manchester City skorað fjögur gegn einu marki frá Sunderland í auðveldum sigri.

Liverpool vann góðan sigur á Leicester og Guus Hiddink náði einungis í eitt stig gegn Watford á heimavelli.

Sjáðu öll mörkin og tilþrifin í leikjunum sem voru klukkan þrjú í dag hér að ofan og hér að neðan. Mörkin úr leik Manchester United og Stoke eru hér, mark Tom Cleverley úr leik Newcastle og Everton er hér og markaveisla Southampton gegn Arsenal má sjá hér.

Manchester City - Sunderland 4-1: Liverpool - Leicester 1-0: Swansea - WBA 1-0: Chelsea - Watford 2-2: Aston Villa - West Ham 1-1:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×