Enski boltinn

Wenger: Spiluðum ekki vel en vorum einnig óheppnir

Anton Ingi Leifsson skrifar
Wenger á hliðarlínunni í dag.
Wenger á hliðarlínunni í dag. vísir/getty
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að hans menn hafi ekki verið nægilega öflugir í dag, en hafi verið óheppnir með mörkin sem þeir fengu á sig.

„Við töpuðum of mörgum návígum í dag - þeir voru skarpari en við. Mér fannst við vera einnig óheppnir því fyrsta skot þeirra fór upp í bláhornið frá hægri bakverði þeirra og mark númer tvö kom eftir brot á Koscielny," sagði Wenger í samtali við BT Sport.

Sjá einnig: Southampton skellti Arsenal og kom í veg fyrir að þeir færu á toppinn | Sjáðu mörkin

„Þessi úrslit eru vonbrigði, en ég verð að segja vel gert við Southampton. Dómarinn lét margt viðgangast, en þegar þú ert ekki ríkjandi í návígunum er það eitthvað sem þú þarft að borga fyrir."

Arsenal er eftir tapið tveimur stigum á eftir Leicster sem situr á toppnum, en City er nú einungis stigi á eftir Arsenal.

„Titillinn vinnst á því að berjast í hverjum einasta leik og skila góðri frammistöðu. Í dag var þetta mjög líkamlegur leikur og við spiluðum ekki nægilega vel," sagði vonsvikinn Wenger í leikslok.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×