Erfiðasta verkefnið verður að styðja Liverpool á laugardaginn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. febrúar 2015 17:00 Myndin tengist fréttinni ekkert. Vísir/Getty
Raymond Moore hefur haldið með Everton alla sína tíð sem þýðir jafnframt að hann hefur hatað nágrannana í Liverpool. Hann hefur nú skipt um lið í einn mánuð og allt fyrir gott málefni. Liverpool Echo segir frá þrekraun Moore um komandi helgi þegar Liverpool-liðin mætast í derby-leik á Goodison Park, heimavelli Everton. Raymond Moore er 51 árs gamall og hann er að safna pening fyrir ungmenna og félagasamtök sem hann rekur í Southport. Það að styðja Liverpool í einn mánuð og þar með í derby-leiknum er aðeins eitt af mörkum verkefnum hans en það erfiðasta að mati Moore. Auk þessa þarf Raymond Moore meðal annars að hlaupa 10 kílómetra í mars, hjóla frá Liverpool til Chester, ganga á þrjú fjöll og komast í gegnum þrautarhlaup kennt við Tough Mudder. Það var að sjálfsögðu Liverpool-stuðningsmaður sem átti hugmyndina að því að Raymond Moore héldi með Liverpool í umræddum leik en þeir hittust í fríi í Tælandi í fyrra. Það fylgir þó sögunni að Raymond Moore ætlar ekki að mæta á leikinn í Liverpool-treyjunni en lofar að fagna hverju marki Liverpool í leiknum. Afsökunin fyrir því að vera ekki í Liverpool-stúkunni var að hann vildi ekki taka sæti frá alvöru stuðningsmanni Liverpool. Það breytir ekki því að Raymond Moore hefur fengið að heyra það frá öðrum stuðningsmönnum Everton sem eru allt annað en sáttir með sinn mann. Það er hægt að lesa umfjöllun Liverpool Echo hér. Leikur Everton og Liverpool fer fram á laugardaginn klukkan 17.30 og verður að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.Vísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Ódýrast að æfa með Þór en dýrast hjá Fram Sport Tiger missir bílprófið í fimm ár Sport Romo játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Enski boltinn Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Íslenski boltinn Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Enski boltinn Allt teymi Heimis framlengir Fótbolti Félagsskiptaglugganum lokað: Stór nöfn færðu sig um set og ekki öllu lokið Fótbolti Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn