Erlent

Konungur Sáda útnefnir nýjan krónprins

Atli Ísleifsson skrifar
Innanríkisráðherrann Mohammed bin Nayef er nýr krónprins Sádi-Arabíu.
Innanríkisráðherrann Mohammed bin Nayef er nýr krónprins Sádi-Arabíu. Vísir/AFP
Salman, konungur Sádi-Arabíu, tilkynnti í morgun um mikla uppstokkun í ríkisstjórn sinni og liggur nú fyrir hver muni erfa krúnuna að honum gengnum.

Salman hefur útnefnt frænda sinn og innanríkisráðherra landsins, hinn 55 ára Mohammed bin Nayef prins, sem arftaka sinn í embætti konungs. Þetta kemur fram í frétt BBC.

Sonur konungsins, Mohammed bin Salman prins, verður annar í röðinni til að erfa krúnuna, en konungur greindi einnig frá því að utanríkisráðherrann Saud al-Faisal prins hafi verið látinn víkja úr embætti.

Hinn 78 ára Salman tók við krúnunni í janúar í kjölfar dauða hálfbróður síns, Abdullah konungs.

Abdullah konungur tók formlega við konungsembættinu árið 2005, en hafði í raun stýrt landinu í áratug fyrir það.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×