Enski boltinn

Enn eitt tapið hjá Charlton | Aron Einar ónotaður varamaður

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jóhann Berg og félagar eru ekki í góðum málum í B-deildinni.
Jóhann Berg og félagar eru ekki í góðum málum í B-deildinni. vísir/getty
Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði Charlton sem tapaði 1-0 fyrir Reading á útivelli í ensku B-deildinni í fótbolta í dag.

Jóhann var tekinn út af á 62. mínútu en sex mínútum síðar missti Charlton mann af velli með rautt spjald. Nick Blackman skoraði svo sigurmark Reading á 76. mínútu.

Þetta var fimmta tap Charlton í síðustu sjö leikjum en liðið er í 20. sæti deildarinnar, tveimur stigum frá fallsæti.

Aron Einar Gunnarsson kom ekkert við sögu þegar Cardiff City og Preston North End gerðu markalaust jafntefli á Deepdale í dag.

Landsliðsfyrirliðinn er ekki í náðinni hjá Russell Slade, þjálfara Cardiff, en hann hefur aðeins spilað 25 mínútur í deildinni á tímabilinu.

Þá lék Eggert Gunnþór Jónsson allan leikinn fyrir Fleetwood Town sem vann 4-0 sigur á Burton Albion í C-deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×