Segir að Falcao fari ef Van Gaal verður áfram stjóri United Tómas Þór Þórðarson skrifar 15. janúar 2015 10:30 Radamel Falcao fékk ekki tækifæri gegn Southampton á sunnudaginn. vísir/getty
Faustino Asprilla, fyrrverandi leikmaður Newcastle og kólumbíska landsliðsins í knattspyrnu, er ósáttur við hvernig Louis van Gaal, knattspyrnustjóri Manchester United, kemur fram við samlanda sinn Radamel Falcao. Hann segir samband þeirra ónýtt og vill meina að Falcao verði ekki áfram á Old Trafford verði Hollendingurinn áfram við stjórnvölinn. Falcao var ekki í leikmannahópi United í 1-0 tapinu gegn Southampton síðastliðinn sunnudag og var sagður hafa strunsað heim þegar honum var tilkynnt það. Kólumbíumaðurinn hafnaði þeim fréttaflutningi. „Ef Van Gaal verður áfram fer Falcao. Ég held að samband þeirra sé nú þegar ónýtt. Falcao skilur að stjórinn vill ekki halda honum,“ segir Asprilla í viðtali við IB Times UK. „Ég man þegar ég fór til Newcastle. Kevin Keegan vildi fá mig til liðsins. Hann studdi mig mikið en það er augljóst að Van Gaal treystir ekki Falcao. „Það er sorglegt að sjá hvernig hann kemur fram við Falcao. Vandamálið er ekki Falcao heldur þjálfarinn. Falcao var meiddur fyrr á leiktíðinni en er búinn að sanna að hann er öflugur markaskorari.“ „Sannleikurinn er að ég veit ekki hvað Van Gaal er að reyna að gera hjá United. Ég held að bæði leikmennirnir og stuðningsmennirnir skilji ekki heldur hvað sé í gangi. Hann breytir svo miklu án þess að hafa ástæður fyrir því,“ segir Faustino Asprilla.
Enski boltinn Mest lesið Upp úr sauð milli þjálfaranna í Garðabæ: „Ég bað hann afsökunar“ Körfubolti Leik lokið: Valur - Grindavík 79-72 | Baráttuglaðir Valsmenn jöfnuðu einvígið Körfubolti Davíð Tómas skipti um skoðun: „Ég var of fljótur á mér“ Körfubolti Davíð Tómas segir flautukörfu Hilmars Smára löglega: „Ekki skref“ Körfubolti Fékk rautt fyrir að rífa í hár mótherja: „Þetta er alveg galið“ Íslenski boltinn Pabbi Hemma fór úr Höllinni og sá aldrei þristinn fræga Körfubolti Umfjöllun og viðtöl: KA 1-2 Keflavík | Fyrsti sigur Keflavíkur Íslenski boltinn Missti stjórn á skapi sínu og réðst á mótherja Fótbolti Fyrstur til að hlaupa maraþon á undir tveimur klukkustundum Sport Tekur við sem fyrirliði í ljósi handtöku Tiger Woods Golf Fleiri fréttir Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Spila alla leiki á Brúnni og bjóða í botnlausan bröns Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Leicester féll aftur og Coventry landaði titlinum Þriðji markvörðurinn stígur upp hjá Liverpool Shearer segir að leikmenn Newcastle hafi fleygt Howe undir rútuna Kjartan tippar á leiki Arsenal og City út tímabilið Kærasta Haalands ekki sátt þegar hann kemur allur klóraður heim Ofurtölvan telur 73 prósenta líkur á að Arsenal verði meistari Fóru yfir hauskúpuleik Garnachos: „Þetta var hræðileg innkoma“ West Ham felldi Wolves Sjá meira