Sagði að ég spilaði eins og stelpa Tómas Þór Þórðarson skrifar 27. desember 2015 20:15 Romelu Lukaku skorar og skorar fyrir Everton. vísir/getty
Romelu Lukaku, framherji Everton, ákvað að skipta um umboðsmann í apríl á þessu ári og semja við Mino Raiola eftir að Ítalinn lét hann heyra það. Raiola er einn skrautlegasti umboðsmaðurinn í boltanum og er duglegur að rífa kjaft, en hann er einnig umboðsmaður Zlatan Ibrahimovic og Paul Pogba. „Mér gekk ekki vel til að byrja með þegar ég kom til Everton og hann var sá eini sem sagði mér sannleikann,“ segir Lukaku í viðtali við Daily Express. „Hann sagði ljóta hluti við mig eins og ég væri að spila eins og stelpa sem hefði aldrei spilað fótbolta.“ „Síðan tók hann leikmenn eins og Zlatan og Bergkamp sem dæmi. Hann spurði mig hvort ég vildi komast á toppinn því ég væri svo sannarlega ekki að spila eins og leikmaður sem vildi ná hæstu hæðum,“ segir Lukaku. Lukaku hefur heldur betur fundið fjöl sína hjá Everton en hann var búinn að skora í sjö leikjum í röð þar til honum mistókst að skora gegn Newcastle í 1-0 sigri liðsins í gær. „Raiola sagði hluti við mig sem særðu mig og særðu stolt mitt. Hann sagði mér að að vera framherji snýst bara um að skora mörk. Það sem ég er að gera núna er honum einnig að þakka. Hann náði að hrista til í hausnum á mér þegar ég var langt niðri,“ segir Romelu Lukaku.
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Fleiri fréttir Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Sjá meira