Enski boltinn

Hiddink: Þessi leikur United og Chelsea sérstaklega stór

Anton Ingi Leifsson skrifar
Hiddink á hliðarlínunni í gær.
Hiddink á hliðarlínunni í gær. vísir/getty
Guus Hiddink, bráðabirgðarstjóri Chelsea út leiktíðina, segir að leikur Chelsea og Manchester United á morgun sé sérstaklega stór miðað við allt sem hefur gengið á hjá liðunum þessa leiktíðina. Chelsea gerði 2-2 jafntefli við Watford í gær, en það var fyrsti leikur Chelsea undir stjórn Hiddink á þessu tímabili.

„Allir leikir Chelsea gegn Manchester United eru stórir, en þessi er sérstaklega stór auðvitað,” sagði Hollendingurinn í samtali við fjölmiðla eftir jafnteflið í gær. „Ég vona að við getum sýnt sama metnað eins og við sýndum stærstan hluta leiksins gegn Watford.”

Chelsea verður án Diego Costa sem er í banni fyrir fimm gul spjöld, en hann fékk það fimmta í leiknum í gær. Meistararnir eru í fimmtánda sæti, tíu stigum á eftir Manchester United þegar átján leikir eru búnir.

Mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð Louis van Gaal og hann gaf lítið fyrir það að ræða framtíð sína við fjölmiðla eftir 2-0 tap United gegn Stoke í gær, jóladag, en það var fjórði tapleikur liðsins í röð.

„Þú verður að bíða og sjá, en ég held það. Mér finnst ég hafa stuðning allra hjá klúbbnum,” sagði Van Gaal aðspurður um hvort hann verði í brúnni þegar Chelsea kemur í heimsókn á Old Trafford á morgun.

„Þetta er Manchester United sem við erum að spila fyrir. Þetta er sérstakur klúbbur og það eru forr´tetindi að spila fyrir hann. Við verðum að gera betur, svo einfalt er það,” sagði enski miðjumaðurinn Michael Carrick og bætti við að lokum:

„Við fáum annan leik fljótt og við þurfum að standa upp og gera okkur kláran fyrir hann.”

Leikur Manchester United og Chelsea heist klukkan 17.30 á morgun og verður að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2/HD.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×