Arnar: Liverpool yrði fullkomið starf fyrir Klopp Kristinn Páll Teitsson skrifar 6. október 2015 14:30 „
Liverpool var til fyrirmyndar þetta ár sem hann stýrði þeim næstum því til sigurs í ensku úrvalsdeildinni og hefði svo sannarlega átt að vinna titilinn en hann er fyrst og fremst rekinn vegna þess að hann kann ekki að fara með peninga,“ sagði Arnar Gunnlaugsson um ákvörðun Liverpool um að reka Brendan Rodgers, fyrrum knattspyrnustjóra liðsins. Hjörvar Hafliðason, Arnar Gunnlaugsson og Ólafur Páll Snorrason gerðu upp 8. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í Messunni í gær og ræddu meðal annars hvað væri raunhæf stefna fyrir Liverpool. „Hann gaf Daniel Sturridge og Philippe Coutinho tækifæri á sínum tíma og það voru frábær kaup en þegar hann fær úr miklu að moða eins og eftir söluna á Luis Suárez og Raheem Sterling þá fór hann að apa eftir það sem Tottenham gerði eftir söluna á Gareth Bale. Kaupa leikmenn sem voru ekki tilbúnir og það varð á endanum hans banabiti,“ sagði Arnar. Mikið hefur verið rætt um að Jürgen Klopp, fyrrum þjálfari Dortmund, muni taka við keflinu sem knattspyrnustjóri Liverpool. „Maður sá myndband um daginn af honum á Anfield og hann virðist hafa einhverja tilfinningu fyrir félaginu. Hann er með karakter sem stuðningsmenn og aðrir bera mikla virðingu fyrir. Hann gæti auðveldlega beðið og séð hvort að til dæmis Chelsea reki Mourinho,“ sagði Ólafur en Arnar telur Liverpool og Klopp fari vel saman. „Ég held að Liverpool sé fullkomið fyrir hann. Hann vill vera í persónulegu sambandi við stuðningsmennina og hvað sem allir segja þá er Liverpool mjög aðlaðandi starf. Þetta er eitt af stóru félögunum í fótboltaheiminum og þetta er þrátt fyrir árangurinn eitt af topp störfunum í fótboltanum,“ sagði Arnar en Ólafur sagðist ekki vera viss hvort Liverpool gæti stefnt á Meistaradeildarsæti. „Ég held að liðið eigi bara að stefna á 6-8. sæti, leikmennirnir sem eru til taks eru einfaldlega ekki nægilega góðir.“
Enski boltinn Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Sérlega gleðileg jól í ár og langt hlé á enda Sport „Allir eru hér að skemmta sér í sátt og samlyndi“ Sport Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Körfubolti „Við erum að spila hérna á móti Paragvæ nánast“ Sport Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Fleiri fréttir Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Sjá meira