Miðvörður Middlesbrough hetjan í uppbótartíma Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. maí 2015 20:49 Jelle Vossen skoraði fyrra mark Middlesbrough og fagnaði vel. Vísir/Getty
Varamaðurinn Fernando Amorebieta tryggði Middlesbrough 2-1 útisigur á Brentford í fyrri undanúrslitaleik liðanna í umspilinu um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta en leikurinn fór fram á heimavelli Brentford. Middlesbrough er í fínum málum en seinni leikurinn verður á heimavelli liðsins. Það lið sem hefur betur mætir annaðhvort Norwich eða Ipswich á Wembley í hreinum úrslitaleik um sætið í úrvalsdeildinni. Brentford hefur komið öllum á óvart í vetur á sínu fyrsta tímabili í ensku b-deildinni í 22 ár en liðið hefur ekki spilað í efstu deild á Englandi síðan 1947. Útlitið er hinsvegar ekki bjart eftir úrslit kvöldsins en Brentford átti miklu meira skilið úr þessum leik. Middlesbrough-liðið hefur ekki spilað í ensku úrvalsdeildinni síðan að liðið féll vorið 2009. Fernando Amorebieta kom inná sem varamaður og skoraði sigurmarkið á þriðju mínútu í uppbótartíma leiksins. Varnarmenn Brentford gleymdu honum í hornspyrnu og hann skoraði gríðarlega mikilvægt mark. Dimi Konstantopoulos, gríski markvörðurinn í liði Middlesbrough, hafði áður fært Brentford jöfnunarmark á silfurfati á 54. mínútu en Andre Gray nýtti sér það vel og bætti um leið fyrir klúður sitt skömmu áður. Það er hægt að sjá það mark hér fyrir neðan. Jelle Vossen skoraði eina mark fyrri hálfleiksins þegar hann kom Middlesbrough í 1-0 á 26. mínútu. Brentford var betra liðið í seinni hálfleiknum en uppskar á endanum ekkert úr þessum leik.
Enski boltinn Mest lesið Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Enski boltinn Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Stór nöfn úr leik á HM í pílukasti Sport Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Enski boltinn Tvær títanplötur settar í Jake Paul eftir kjálkabrotið Sport Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Enski boltinn Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Handbolti Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Fleiri fréttir „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Alexander Isak fékk sænska gullboltann „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Sjá meira