Enski boltinn

Wenger: Myndi gráta ef það væri enginn jólabolti

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, yrði afar ósáttur ef það yrði hætt að spila í ensku úrvalsdeildinni yfir jólahátíðarnar.

Louis van Gaal, stjóri Manchester United, steig fram í vikunni og sagði að það versta við ensku úrvalsdeildina væri að það væri ekkert vetrarfrí. Það væri til að mynda ástæða þess að enska landsliðinu gengi aldrei vel á stórmótum.

Wenger segist hafa skilning á skoðun Van Gaal en segist ekki sammála henni. „Kannski er það vegna þess að ég hef verið hérna svo lengi,“ sagði Wenger sem hefur verið stjóri Arsenal síðan 1996.

„Ég var með ákveðnar hugmyndir þegar ég kom hingað en í dag myndi ég gráta ef þessu yrði breytt. Það er hlutui af enskri hefð og enskri knattspyrnu [að spila um jólin].“

„Öll Evrópa fylgist með ensku deildinni þegar það er spilað á öðrum degi jóla. Þetta er stór hluti af því að þetta er vinsælasta deild í heimi því það vinnur enginn um jólin og allir horfa á ensku úrvalsdeildina.“

Hann segist hins vegar hlynntur vetrarfrí snemma á nýju ári. „Ég hef alltaf talað fyrir því að deildin fari í frí eftir 1. janúar. En við verðum að virða okkar hefðir.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×