Klopp: Var einmana þegar ég sá stuðningsmennina yfirgefa völlinn Tómas Þór Þórðarson skrifar 9. nóvember 2015 08:00 Jürgen Klopp gengur svekktur af velli. vísir/getty
Jürgen Klopp þurfti í gær að sætta sig við sitt fyrsta tap sem knattspyrnustjóri Liverpool og það á heimavelli þegar Crystal Palace kom í heimsókn. Miðvörðurinn Scott Dann tryggði gestunum frá Lundúnum sigurinn, 2-1, með skallamarki á 82. mínútu. Klopp gerði jafntefli í fyrstu þremur leikjum sínum og vann svo þrjá í röð áður en kom að tapinu í gær. Þegar Scott Dann skallaði boltann í netið fyrir Palace átta mínútum fyrir leikslok gafst hluti stuðningsmanna Liverpool upp og yfirgaf Anfield. „Áttatíu og tvær mínútur - leik lokið,“ sagði Klopp við BBC eftir leikinn. „Ég sneri mér við og varð ansi einmana á þeirri stundu. Það erum við sem verðum að ákveða hvenær leiknum er lokið.“ Markið sem sendið fólkið heim: Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Liverpool fær á sig mark undir lok leiks undir stjórn Klopps á Anfield. Southampton skoraði einnig og tryggði sér jafntefli undir lokin í leik liðanna í síðasta mánuði. Klopp er ekki reiður út í stuðningsmennina sem yfirgáfu völlinn heldur er hann ósáttur með að leikmennirnir fá ekki fólkið til að trúa að endurkoma sé handan við hornið. „Stuðningsmennirnir hafa sínar ástæður þannig ég er ekki svekktur út í þá. Það erum við sem berum ábyrgð á því að enginn fer af vellinum fyrr en búið er að flauta til leiksloka því allt getur gerst,“ sagði Klopp. „Það er hægt að skora átta mörk frá 82. mínútu og þar til á þeirri 94 ef menn vilja. Það verður bara að vinna fyrir því. Það þurfum við að sýna en gerðum ekki,“ sagði Jürgen Klopp.
Enski boltinn Mest lesið Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Enski boltinn Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Fótbolti Emin sigraði með rothöggi og er enn taplaus Sport Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Man. Utd og lærisveinar Eiðs þurfa að svara fyrir sig Sport Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Sjá meira