Enski boltinn

Góðar fréttir fyrir West Ham | Payet verður með gegn Liverpool

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Payet átti hvað stærstan þátt í góðu gengi West Ham framan af tímabilinu.
Payet átti hvað stærstan þátt í góðu gengi West Ham framan af tímabilinu. vísir/getty
Franski miðjumaðurinn Dimitri Payet snýr aftur í lið West Ham þegar það tekur á móti Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn.

Payet meiddist á ökkla í leik gegn Everton þann 7. nóvember og í fyrstu var haldið að hann yrði frá í þrjá mánuði af þeim sökum.

"Hann hefur æft með okkur undanfarna daga og hann kemur við sögu í leiknum gegn Liverpool," sagði Slaven Bilic, knattspyrnustjóri West Ham.

Þetta eru góðar fréttir fyrir stuðningsmenn West Ham en Payet spilaði mjög vel áður en hann meiddist. Þessi 28 ára gamli Frakki hefur skorað fimm mörk og lagt upp þrjú í 12 deildarleikjum á tímabilinu.

Svo gæti einnig farið að Winston Reid og Victor Moses yrðu í leikmannahópnum gegn Liverpool en að sögn Bilic er þó líklegra að þeir snúi ekki aftur fyrr en í bikarleiknum gegn Wolves 9. janúar.

West Ham er í 8. sæti úrvalsdeildarinnar með 29 stig eftir 19 umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×