Enski boltinn

„Arsenal verður að kaupa einn eða tvo góða leikmenn“

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Arsenal er í góðri stöðu í ensku úrvalsdeildinni, tveimur stigum á eftir Leicester þegar 17 umferðir eru búnar en möguleikar liðsins á Englandsmeistaratitlinum voru ræddir í Messunni á Stöð 2 Sport 2 HD í gærkvöldi.

„Við tökum Leicester ekki alvarlega í toppbaráttunni þannig þó Arsenal sé í öðru sæti er liðið með fjögurra stiga forskot á toppnum,“ sagði Hjörvar Hafliðason og Jóhannes Karl Guðjónsson tók undir orð hans.

„Ég held að Leicester sé ekki með nógu mikla breidd til að klára tímabilið á þeim stað sem það er í dag,“ sagði Jóhannes en Arnar Gunnlaugsson skaut inn: „Við erum reyndar búnir að segja þetta lengi.“

Jóhannes hélt áfram: „Ég held að Arsenal sé með heilsteyptasta liðið og mikil gæði í sínu liði. Það er líka með sterka varnarlínu og frábæran markvörð.“

Arnar Gunnlaugsson vill að liðið bæti við sig góðum leikmönnum í janúar til að klúðra ekki þessu tækifæri sem það er komið í.

„Það sem Arsenal þarf að gera núna er að kaupa einn til tvo virkilega góða leikmenn. Það gerði liðið ekki fyrir tveimur árum þegar það var í séns,“ sagði Arnar.

Alla umræðuna má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir

Messan: Jamie Vardy eins og Gary Martin

Leicester City er á toppnum í ensku úrvalsdeildinni og Hjörvar Hafliðason og félagar fóru yfir leik Leicester-liðsins í Messunni í gær. Þeir ræddu líka um Jamie Vardy og þar kom KR-ingurinn Gary Martin við sögu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×