Enski boltinn

City í engum vandræðum með Sunderland

Anton Ingi Leifsson skrifar
Yaya Touré, leikmaður Man. City.
Yaya Touré, leikmaður Man. City. vísir/getty
Manchester City átti í engum vandræðum með Sunderland á heimavelli. Eftir sigurinn er City einungis þremur stigum frá toppliði Leicester.

Raheem Sterling kom City yfir á þrettándu mínútu eftir undirbúning Kevni de Bruyne og fjórum mínútum síðar var staðan orðin 2-0. Þá var það David Silva sem skoraði.

Leikmenn City voru ekki hættir því Wilfried Bony skoraði þriðja markið fyrir hlé eftir undirbúning Kevin de Bruyne. Staðan 3-0 í hálfleik.

Það var svo komið að Kevin de Bruyne að skora á þeirri 54. mínútu, en Fabio Borini klóraði í bakkann fyrir Sunderland fimm mínútum síðar. Lokatölur 4-1 sigur City.

City í þriðja sætinu með 35 stig, þremur stigum frá toppnum, en Sunderland í bullandi vandræðum; með tólf stig í næst neðsat sæti, fimm stigum frá öruggu sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×