Enski boltinn

Norwich búið að ganga frá kaupunum á Jarvis

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jarvis hefur ekkert spilað síðan 31. október vegna meiðsla.
Jarvis hefur ekkert spilað síðan 31. október vegna meiðsla. vísir/getty
Norwich City hefur gengið frá kaupunum á kantmanninum Matt Jarvis frá West Ham United.

Talið er að kaupverðið sé í kringum tvær og hálfa milljón punda en Jarvis skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við Kanarífuglana.

Jarvis hefur verið á láni hjá Norwich frá því í september en nú er ljóst að hann verður áfram hjá liðinu.

Jarvis skoraði eitt mark í fimm deildarleikjum fyrir Norwich áður en hann meiddist á hné. Hann hefur ekkert spilað síðan í 2-1 tapinu fyrir Manchester City 31. október.

Norwich er í 16. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 17 stig, tveimur stigum frá fallsæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×