Enski boltinn

Benitez var tveim tímum frá því að fara til West Ham

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rafa Benitez.
Rafa Benitez. vísir/getty
Það munaði afar litlu að West Ham hefði ráðið Rafa Benitez sem knattspyrnustjóra félagsins síðasta sumar.

Annar eiganda félagsins, David Sullivan, hefur upplýst að félagið var tveim tímum frá því að ráða hann sem knattspyrnustjóra.

„Við vorum tveim tímum frá því að fá hann en þá kom Real Madrid inn í spilið. Þá höfðum við þegar náð saman um samning," sagði Sullivan.

„Hann er frábær stjóri sama hvað fólk segir og ég held að hann hefði staðið sig frábærlega hjá okkur."

Sullivan segir að félagið hafi einnig reynt að fá Jürgen Klopp en hann fór frekar til Liverpool.

Á endanum fór svo að West Ham réði Slaven Bilic og Sullivan segist vera hæstánægður með hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×