Eiganda Leeds United finnst liðið sitt vera of oft í sjónvarpinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. desember 2015 09:30 Massimo Cellino. Vísir/Getty
Sjónvarpsmenn Sky fá ekki leyfi til að koma inn á Elland Road í dag en þeir ætluðu að stilla upp fyrir útsendingu frá leik Leeds United í ensku b-deildinni. Leeds United tekur á móti Derby County í kvöld og er þetta í níunda skiptið á tímabilinu þar sem leikur Leeds-liðsins hefur verið valinn fyrir beina sjónvarpsútsendingu hjá Sky-sjónvarpsstöðinni. Massimo Cellino, ítalskur eigandi Leeds United, hefur skipað starfsfólki sínu að banna sjónvarpsmönnum að koma inn á leikvanginn með tækin sín. Cellino finnst að Leeds United sé alltof oft í sjónvarpinu og að það hafi neikvæð áhrif á áhorfendaaðsókn á leiki liðsins. Leeds United er í þriðja sæti yfir bestu aðsóknin í deildinni og er að fylla að meðaltali um 58 prósent sæta á Elland Road. Fulltrúar frá enska sambandinu eru að reyna að leysa málið samkvæmt frétt á BBC enda eru samningar í gildi á milli enska sambandsins og Sky. Massimo Cellino hefur því lögin ekki með sér og í raun engan rétt á því að loka dyrunum á Sky-menn. Leeds United er þó ekki það félag sem hefur verið oftast í sjónvarpinu því það er þegar búið að sýna níu leiki beint með Nottingham Forest. Það er aftur á móti langt í næstu lið en tveir leikir hafa verið sýndir með Preston, Brentford, Bristol City, Charlton, Rotherham og MK Dons. Massimo Cellino verður ekki sjálfur á leiknum í kvöld, væntanlega að fagna jólunum heima á Ítalíu, og samkvæmt þessum fréttum þá mun hann ekki heldur ætla að horfa á leikinn í sjónvarpinu. Leeds United er aðeins í 14. sæti ensku b-deildarinnar en gæti komist upp í 11. sæti með sigri í leiknum í kvöld.
Enski boltinn Mest lesið Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Enski boltinn Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Íslenski boltinn „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Fleiri fréttir Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Sjá meira