Özil hefur búið til fleiri dauðafæri en allt Chelsea-liðið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. desember 2015 15:30 Mesut Özil. Vísir/Getty
Mesut Özil hefur verið magnaður með toppliði Arsenal í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabil og hann bæði skoraði og gaf stoðsendingu í í 2-0 sigri á Bournemouth í gærkvöldi í síðasta deildarleik Arsenal-liðsins á árinu 2015. Özil gaf sína sextándu stoðsendingu þegar hann lagði upp fyrra mark Arsenal fyrir Gabriel Paulista og vantar aðeins fjórar stoðsendingar til að jafna stoðsendingamet Thierry Henry frá 2002-03. Mesut Özil átti frábæran leik á móti Bournemouth og bjó alls til níu skotfæri í leiknum þar af voru fimm þeirra dauðafæri. Þetta er það mesta hjá einum leikmanni í einum leik á þessu tímabili samkvæmt frétt á Sky Sports. Sky Sports tók líka saman fleiri tölur um það hvernig Özil hefur spilað uppi samherjana á þessu tímabili. Özil hefur gefið tvöfalt fleiri stoðsendingar en næsti maður á listanum sem er Kevin de Bruyne hjá Manchester City. Kevin de Bruyne gæti minnkað forskotið í leiknum á móti Leicester í kvöld. Özil hefur alls skapað 80 skotfæri fyrir félaga sína á tímabilinu eða 30 fleiri færi en næsti maður sem er Dusan Tadic hjá Southampton. Özil hefur ennfremur búið til 21 dauðafæri fyrir félaga sína en næsti maður á þeim lista er Riyad Mahrez hjá Leicester City með 12 slíkar sendingar. Özil hefur skapað fleiri dauðafæri en allir leikmenn hjá sex félögum. Eitt af þessum sex félögum eru ríkjandi Englandsmeistarar Chelsea.Vísir/GettyÖzil langefstur á öllum listum í ensku úrvalsdeildinni (Tekið saman af Sky Sports):Flestar stoðsendingar 2015/16 Mesut Özil, Arsenal 16 Kevin de Bruyne, Man City 8 Riyad Mahrez, Leicester City 7 David Silva, Man City 7 Gerard Deulofeu, Everton 7 Ross Barkley, Everton 7Flest sköpuð skotfæri 2015/16 Mesut Özil, Arsenal 80 Dusan Tadic, Southampton 50 Kevin de Bruyne, Man City 48 Dimitri Payet, West Ham 47 Christian Eriksen, Tottenham 47Flest sköpuð dauðafæri 2015/16 Mesut Özil, Arsenal 21 Riyad Mahrez, Leicester City 12 Hector Bellerin, Arsenal 8 Sadio Mane, Southampton 8 Moussa Sissoko, Newcastle 8
Enski boltinn Mest lesið Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Handbolti Elvar úr leik á EM Handbolti Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Handbolti „Mér líður bara ömurlega“ Handbolti Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu Handbolti Svona meiddist Elvar Handbolti „Beint flug til Köben og nokkrir veikindadagar“ Handbolti „Langt frá því að vera faglegt“ hjá dómaraparinu frá Norður-Makedóníu Handbolti Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Fleiri fréttir Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Sjá meira